Ítarmenntun

Fjarnám fyrir kennara

Þetta námskeið er opið kennurum, sem eru meðlimir í Skruddu.


Íslenska sem móðurmál erlendis;          Aðferðir
Íslenska fyrir erlent námsfólk
Íslenska 
sem annað tungumál
Íslenska sem móðurmál
erlendis;              Yfirlit
Námsgögn
Móðurmálsnám innflytjenda á Íslandi
Um tvítyngi
Fjarnám; aðferðir
Lestur og málþroski

Fjarnám og ítarmenntun

Á þessari síðu fer fram eftirgrennslunarnám (PBL = Problem Based Learning)
í samvinnu allra þáttakenda í námskeiðinu. Þáttakendur eru beðnir að velta fyrir sér eftirfarandi vandamálum og spurningum og leita svara við þeim á Netinu, á bókasöfnum eða hjá einstaklingum sem hafa reynslu af móðurmálskennslu erlendis. Vinsamlegast sendið inn niðurstöðurnar af eftirgrennslan ykkar hér.
Þær verða síðan birtar á þessari síðu. Sendið einnig inn nýjar spurningar,
tillögur að umræðuefnum, greinar og ábendingar um fleiri tengla og rit.
Þetta  fjarnámskeið var frá upphafi ítarmenntunarnámskeið fyrir íslenska móðurmálskennara erlendis og annað áhugafólk um tvítyngi. Þar að auki er það nú orðið ítarmenntunarnámskeið fyrir kennara í íslensku sem öðru máli. Í þriðja lagi getur það komið að gagni sem ítarmenntunarnámskeið fyrir kennara í íslensku fyrir erlent námsfólk.

Íslenska sem móðurmál á Íslandi, íslenska sem móðurmál erlendis, íslenska sem annað tungumál og íslenska fyrir erlenda námsmenn eru í rauninni fjórar mismunandi námsgreinar, þótt um sama tungumálið sé að ræða. Markmið, aðferðir, námsefni og forsendur eru ólík og aðstæður og þarfir nemendanna eru gjörólíkar. Þessar fjórar greinar íslenskukennslunnar þarfnast hver um sig sérmenntaðra kennara. Hingað til er það aðeins kennsla í íslensku sem móðurmáli á Íslandi, sem hefur næga völ á sérmenntuðum kennurum. Íslenskir móðurmálskennarar á Norðurlöndunum hafa aðeins í liutlum mæli fengið ítarmenntun á vegum Skruddu og á vegum bæjarfélaganna, sem þeir starfa hjá. Kennarar í íslensku sem öðru máli hafa síðustu árin fengið stutt námskeið á vegum Kennaraháskóla Íslands, en fáir kennararar eru til, sem hafa kennslu í íslensku sem öðru máli að aðalstarfi, eða hafa fulla kennaramenntun til þess, eins og tíðkast á hinum Norðurlöndunum. Kennarar í íslensku fyrir erlenda námsmenn hafa háskólamenntun í íslensku, en námsefni miðað við þessa nemendur er af skornum skammti og það skortir á að halda til haga þeirri reynslu, sem fengist hefur, og þróa aðferðir miðaðar við kennslu námsfólks, sem ekki er innfæddir Íslendingar.

Ýmsar greinar tungumálakennslu hafa mismunandi markhópa og ólíkar aðferðir. Það sem þær  hafa sameiginlegt er fyrst og fremst almennar kenningar um tungumálakennslu og vissir hlutar námsefnis. Þetta námskeið á að kynna nýjar kenningar í tungumálakennslu, vera vettvangur fyrir umræðu milli tungumálakennara og sameiginlega leit að lausnum á vandamálum í starfi.

Þetta námskeið byggist á gagnvirkri og virkri þáttöku. Ætlast er til þess að þáttakendur miðli á meðal sín þeirri reynslu, þekkingu, hugmyndum og kennsluefni sem þeir hafa aflað sér í starfi. Þetta efni skal sent með netpósti eða sem viðhengi inn á netfangið gangleri@algonet.se og verður það þá sett inn á viðeigandi vefsíðu eða boðskiptasíðu. Hinar ýmsu vefsíður námskeiðsins eru vettvangar fyrir umræður um afmörkuð málefni.

Við stefnum  að því að halda "raunsetunámskeið" þegar fjárhagur félagsins leyfir.

Öll réttindi áskilin. © Skrudda