Ísafjörður
 
 
Ísafjörður er stærsti kaupstaðurinn á Vestfjörðum. Hann er á mjórri eyri við Skutulsfjörð við Ísafjarðardjúp. Þar búa yfir 3000 manns. Á Ísafirði er góð höfn. Mörg fiskiskip og farskip koma þangað. Á Ísafirði er líka skipasmíðastöð. 
Fjöllin fyrir sunnan Skutulsfjörð eru mjög há, um það bil 900 metrar. Þar sem Ísafjörður er nálægt heimskautsbaugnum, skyggja þau á sólina í desember og janúar. Þegar sólin sést aftur í lok janúar, halda Ísfirðingar hátíð, sem heitir sólarkaffi. Þá borða þeir rjómapönnukökur.
Margir Ísfirðingar vinna með fisk. Annað hvort veiða þeir fisk, eða vinna úr fiskinum vörur, sem eru fluttar út til annarra landa. Margt fólk frá öðrum löndum kemur líka til að vinna með fiskinn. Fiskvinnsla er erfið vinna. Margir vinna hratt til að fá bónus. Þeir vilja fá mikla peninga til að kaupa sér hús, eða nýjan bíl
Sjómennirnir eru úti á sjó í marga daga til að veiða fisk. Þeir vinna mikið og fá mikla peninga sem þeir nota til að kaupa hús og bíla. Þegar þeir eru í landi, fara þeir á ball. 
Íslendingar borða oft fisk. Það eru til margar tegundir af fiski í búðunum og hann er ódýr og góður. 
Fyrir ofan Ísafjörð er dalur, sem heitir Seljalandsdalur. Þar eru háar hlíðar og mikill snjór á vetrum. 
Þar er skíðaland Ísfirðinga. 
Margir koma líka frá öðrum stöðum til að fara á skíði. Ísfirðingar eru gott skíðafólk og þeir hafa oft unnið í alþjóðlegum skíðakeppnum.
Það er flugvöllur á Ísafirði og það eru flugferðir þangað daglega. En fluvöllurinn er í þröngum dal milli hárra fjalla. Flugmennirnir segja, að það þurfi að lenda þar með skóhorni.
Þegar það er hvasst, geta flugvélar ekki lent á Ísafirði. Stundum verða menn veðurtepptir á Ísafirði dögum saman. Algeng spurning á Ísafirði er:
"Er flogið í dag?"
Á Ísafirði eru góð bakarí, sem baka brauð, kökur, súkkulaðisnúða og margt annað gott. Á bolludag baka þau rjómabollur. Börnin vakna snemma á bolludag og flengja foreldra sína með bolluvendi, sem þau hafa búið til úr skrautpappír. Þau fá eina rómabollu fyrir hvert högg, sem þau geta slegið áður en foreldrarnir vakna. (Bolludagur er síðasti mánudagur fyrir páskaföstu.) 
Fyrir 100 árum síðan var Ísafjörður næst stærsti kaupstaður á Íslandi, og á tímabili stærri en Reykavík. Á nítjándu öld bjuggu margir Danir og Norðmenn á Ísafirði, og eldra fólk notar enn nokkur dönsk orð. Þetta aldamótahús var fyrsta fjölbýlishúsið á Íslandi. Það heitir Félagsbakaríið.  Í því eru ennþá íbúðir og bakarí. 

 
Inflection exercise
Gap filling exercise
Quiz
Crossword
Translation exercise

 
aftur = again
aldamótahús 
       = centennial building
algeng = common
annað hvort = either - or
annarra landa 
         = other countries
áður en = before
bakarí = bakery
ball = dance
bíl = car
bjuggu = lived
bolludagur 
         = carnaval monday
bolluvöndur = ceremonial decorative broom
borða = eat
bónus = higher wages
brauð = bread
búið til = made
börn = children
í dag = today
daglega = daily
dal = valley
Danir = Danes
dögum saman = for days
dönsk = danish
eldra = elderly
enn/ennþá = still
erfið = hard
eyri = small peninsula, 
          sandspit
farskip = freighting ships
fisk = fish
fiskiskip = fishing ships
fiskvinnsla 
= fish processing
fjöll = mountains
fjalla=mountain(gen.plur.)
er flogið = are they flying
flenga = spank
flugferð = flight
flugmenn = pilots
flugvöllur = airfield
fluttar út = exported
félagsbakarí 
     = kooperative bakery
fölbýlishús 
     = apartment building
foreldrar = parents
fyrir = fore
fyrsta = first
geta = can
halda hátíð 
         = celebrate a feast
há = high
hárra = high (gen. plur.)
heimskautsbaugur 
          = polar circle
hratt = fast
höfn = harbour
hús = house
hvasst = stormy
högg = stroke
íbúðir = apartments
kaupa sér = buy
kaupstaður = town
kökur = pastries
í landi = ashore
lenda = land
í lok = at the end of
mikla =  much
milli = between
mjó = narrow
nálægt = near
nítjándu öld 
              = 19th century
nokkur = some
Norðmenn= Norwegians
notar = uses
næst stærsti 
         = second in size
orð = words
páskaföstu = fasting period before easter
peninga = money
rjómabollur = buns 
with whipped cream
rjómapönnukökur 
= pancakes with 
   whipped cream
sest = goes down
sjómenn 
= sailors/ fishermen
segja = say
síðan = ago
síðasti = last
skóhorn = shoe horn
skrautpappír =   coloured paper
skyggja 
    = cast a shadow on..
slegið = hit
snúður = bun
sól = sun
snemma = early
spurning = question
stærri en = bigger than
sunnan = south of
súkkulaðisnúður 
        = chocolate bun
á tímabili=for a period
um það bil (u. þ. b.) 
      = approximately
úti á sjó = at sea
vakna = wake up
veiða = catch
verða = become
veðurtepptir = 
grounded because 
   of the weather
vinna = work, produce
vöndur = broom
vörur = products
þangað = there
þegar = when
þröngum = narrow
í því = in it
það þurfi = one has to

Öll réttindi áskilin © Skrudda