Djákninn á Myrká
Á bænum Myrká í Eyjafirði átti djákni
heima. Djákni var ungur maður, sem var að læra hjá presti. Hann var hrifinn af stúlku, sem hét Guðrún og var vinnukona á öðrum bæ. Hann fór oft að heimsækja hana. Hann reið alltaf á gráföxóttum hesti, sem hét Faxi.