| Ferðamaður spurði einu sinni íslending:
- Er lýðræði eða einræði á Íslandi? Hver stjórnar á Íslandi? Íslendingurinn hugsaði lengi..... Svo sagði hann: - Það er veðrið! Á Íslandi er það veðrið, sem ræður öllu. Ef veðrið er gott, er allt gott. Ef veðrið er vont, er allt vont. Þess vegna vilja íslendingar helst ekki skipuleggja neitt fram í tímann. Ef þú ætlar að fara í ferðalag, getur komið bylur og þú verður veðurteppt(ur) einhversstaðar uppi á fjöllum. Ef þú ætlar að vera heima eða vinna, getur komið sól og hiti, og þú bara verður að fara út í náttúruna. Ísland er í miðju Atlantshafi. Það er Golfstraumurinn, sem ræður veðrinu. Þess vegna eru veturnir mildir og sumrin svöl á Íslandi. Það er stundum kalt og það getur jafnvel snjóað í júní. En það getur líka komið sextán stiga hiti í febrúar. Ef þér finnst veðrið vont, skaltu bara bíða. Veðrið breytist oft mörgum sinnum á dag á Íslandi. Það getur verið logn og þoka um morguninn, rok og rigning um hádegið, skýjað eftir hádegið, bjart og sólskin um kvöldið. Taktu með þér föt, sem henta öllum veðrum. Íslendingar lifa eftir veðrinu. Þeir eru bjartsýnir forlagatrúarmenn. Þegar eitthvert vandamál kemur upp á Íslandi, er svarið: - Þetta er allt í lagi. Ekkert mál! - Bíddu bara! Þetta reddast allt saman! |
|
|
|
|
|
Glossary
| á dag = dayli
allt í lagi = OK allt saman = all of it bíða, bíddu = wait bjart = clear bjartsýni = optimism breytist = changes bylur = blizzard einhvers staðar = somewhere einræði = diktatorship einu sinni = once eitthvert = something ekkert mál = no problem ferðalag = trip ferðamaður = tourist finnst = belives fjöllum = mountains (dat.) forlagatrú = fatalism fram í tímann = in the future getur komið = can be |
getur verið = can become
hádegi = noon heima= at home helst ekki = rather not henta = fit hiti = heat hugsaði = thought jafnvel = even kemur upp = rises lifa eftir = follow logn = calm lýðræði = demokracy miðju = in the middle morgunn = morning mörgum sinnum = often ekki neitt = nothing reddast = will make itself right rigning = rein rok = storm |
ræður = decides
sinnum = times skýjað = cloudy snjóa = to snow spurði = asked stiga hiti = degrees warm stjórnar = decides stundum = sometimes svöl = cool vandamál = problem veðrið = the weather veðurteppt = isolated because of the weather verður = must vinna = work vont = bad þess vegna = because þoka = fog ætlar = plans öllum veðrum = all weather |
Inflection of neutral nouns
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
||||||
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Öll réttindi áskilin. © Skrudda