Ferðalag
Það voru einu sinni Ameríkani, Dani og Frakki, sem voru á ferðalagi. Þeir fóru á jeppa um allt Ísland. En jeppinn festist í á. Það var skaði á jeppanum og þeir voru í miklum vanda. Þeir þurftu hjálp. Langt í burtu sáu þeir bóndabæ. Ameríkaninn fór fyrst að ná í hjálp. Eftir langa stund kom hann aftur. - Þau tóku ekki við krítarkortinu mínu!  sagði hann.
Þá fór Daninn af stað. Eftir tvo klukkutíma kom hann aftur.
- Það var góður matur þar, sagði hann. Og ég fékk kaffi og tertu á eftir.
- En var sími þar, spurðu hinir.
- Nei, ég gleymdi því, sagði Daninn.
Nú fór Frakkinn af stað. Hann kom ekki aftur fyrr en næsta morgun.
- Bóndakonan var reglulega sæt, sagði hann. Ég fékk að gista hjá henni.
- En átti hún síma! hrópuðu hinir.
- Nei, ég gleymdi því, sagði Frakkinn.
Eftir langan tíma kom skáti. 
- Ert þú með síma? spurðu ferðamennirnir. 
- Nei, en ég er með gemsa, sagði skátinn.
Skátinn hringdi eftir hjálp og þeir gátu losað jeppann.
Gap fill exercise
Word match exercise Translation exercise

Declination of male nouns ending with -i:

Singular
Nominative sími jeppi gemsi pabbi 
("pa")
afi ("grandpa") kennari (teacher)
Accusative síma jeppa gemsa pabba afa kennara
Dative síma jeppa gemsa pabba afa kennara
Genitive síma jeppa gemsa pabba afa kennara
Plural
Nominative símar jeppar gemsar pabbar afar kennarar
Accusative síma jeppa gemsa pabba afa kennara
Dative símum jeppum gemsum pöbbum öfum kennurum
Genitive síma jeppa gemsa pabba afa kennara

Vocabulary

aftur = back/ again
á = river 
á eftir = afterwards
átti = had
bóndakona = farmers wife
Dani= dane
ertu með? = do you have?
ferðalag = travel
festist = got stuck
fór = went
Frakki = frenchman
gemsi = cellphone
gista = stay overnight
gleymdi = forgot
hálftími = half an hour
hinir = the others
hjá = beside
hjálp = help 
hringja = call
jeppi = jeep
kaffi = coffee
krítarkort = credit card
langt í burtu = far away
losa = get loose
matur = food
reglulega = absolutely
sagði = said
skaði = damage
skáti = boy scout
sæt = sweet
terta = cake
vandi = trouble
það var einu sinni...... =
         once upon a time.....
þurfa = need

Öll réttindi áskilin. © Skrudda