Björk


HIPPABARNIÐ
Björk Guðmundsdóttir fæddist 21. nóvember árið 1965. Hún ólst upp í hippakommúnu. Það hafði mikil áhrif á hana sem tónlistarmanneskju.
Hún byrjaði að syngja mjög snemma sem barn. Þegar hún var fimm ára gömul byrjaði hún í tónlistarskóla Reykjavíkur og lærði þar að spila á hljóðfæri og syngja. Björk var ellefu ára (1977) þegar fyrsta platan hennar kom út. Þessi plata hét Arabadrengurinn, og á henni voru lög eftir Beatles, Stevie Wonder og Edward Winters, þýdd yfir á íslensku. Á unglingsárum var hún með í ýmsum hljómsveitum eins og t.d. "Spit and Snot", "Rokka Rokka Drum", "Tappi Tíkarrass" og "Kukl".

KUKL OG SYKURMOLARNIR
Árið 1981 var hljómsveitin "Tappi Tíkarass" með í umdeildri kvikmynd,  "Rokk í Reykjavík". Eftir það varð hljómsveitin "Kukl" til (1984-1986).  Þau gagnrýndu íslenska kerfið. Kukl spiluðu pönk og voru samtíða "Siouxie and the Banshees". Kukl og Björk urðu uppáhalds hljómsveit hjá mörgum.
Þegar tónlist þeirra varð vinsæl í öðrum löndum, breyttu þau um nafn og kölluðu sig "The Sugarcubes" eða á íslensku "Sykurmolarnir".
Fyrsta plata þeirra, "Life´s to good......", vakti mikla hrifningu. Þau fengu tilboð frá mörgum plötuútgefendum. Þau höfnuðu þeim öllum, en eftir eitt og hálft ár tóku þau loksins tilboði frá plötuútgefanda. 

BJÖRK FER EIGIN LEIÐIR
1992 hélt Björk áfram alein og gaf út plötuna Debut árið 1993. Hún hefur líka gefið út plöturnar Post og Homogenic. Björk er nú frægasta söngkona Íslands. Hún á einn son, sem heitir Sindri. Hann fæddist árið 1986. Í dag eiga þau heima ýmist í London, á Spáni eða á Íslandi. Sumir segja að hún sé að gera nýja plötu. En nú hefur hún líka leikið í bíómynd.

MYRKRADANSARINN
Bíómyndin Myrkradansarinn (Dancer in the dark) eftir Lars von Trier 
vann gullpálmann í Cannes árið 2000. Björk fékk verðlaunin fyrir besta leik í aðalhlutverki. Hún lék einstæðu móðurina Selmu. Mikil  fagnaðarlæti brutust út í salnum þegar sagt var að Björk hefði unnið verðlaunin. 
Sumir halda að Björk fái Óskarsverðlaun sem besta leikkona ársins 2000. 

Lars von Trier og Björk voru oft ósammála þegar myndin var gerð. 
Þegar Lars tók við verðlaununum, sagði hann: 
- Ef þið hittið Björk, segið henni þá, að ég elska hana.
Þegar Björk tók við verðlaununum, sagði hún tvisvar sinnum: 
-Ég er mjög þakklát. Þakka ykkur kærlega fyrir. 

Björk sagði, að púlsinn í sér hafi stundum farið úr 60 slögum á mínútu upp í 120, þegar hún var að leika í Myrkradansaranum. 
Annar kvikmyndaleikari sagði í MTV: 
- Það er mesta furða, að hún hafi ekki dáið, þegar hún lék í myndinni. Það er svo hræðilega erfitt að leika í kvikmynd.
Björk segist aldrei ætla að leika í kvikmynd aftur. En við eigum eftir að heyra meira um Björk Guðmundsdóttur. 

Heimasíða Bjarkar


 
Declination exercise
Gap fill exercise

Please fill in this form in Icelandic
(with inaccurate items if you prefer)

I was born in ___________________ 19___
I grew up in a (colour) house
My father is a (occupation)
My mother is a (occupation)
I started school when I was _____ years old
My favourite book is __________________
I was _______ years old 
when I bought my first  record
My favourite music is (type of music)
My favourite movie is __________________
 
Mail the filled form here.
 
Vocabulary
aðalhlutverk = leading role
aldrei = never
alein = all by herself
áhrif = influence
barn = child
bíómynd = film
breyttu = changed
brutust út = broke out
byrjaði = started
dansari = dancer
dáið = died
eftir = by
eigin = own
einstæð móðir = single mother
erfitt = difficult
fagnaðarlæti = cheers
farið úr = go from
fékk = got
frægasta = most famous
furða = wonder
fæddist = was born
gaf út = published
gagnrýndu = critizised
gullpálmi = golden palm 
hafi = should have
halda = think
heitir = is called
hélt áfram = went on
hippakommúna = commune
                              /hog farm
hippar = hippies
hittið = meet
hljóðfæri = music instruments
hljómsveit = roch group
hrifning = enthusiasm
hræðilega = terribly
í dag = today
kerfið = the establishment
kukl = sorcery
kvikmynd = film
kvikmyndaleikari = actor
kærlega = dearly
leið = way
leika = act
loksins = at last
líka = also
lærði = learned
lög = songs
löndum = countries
mikil = great
mjög = wery
myrkur = dark
mörgum = many
ólst upp = grew up
ósammála = disagreeing
plata = record
plötuútgefandi
                   = record company
púls =  pulse
pönk = punk rock
samtíða = contemporary
salnum = saloon
segist = declares
slög = beats
spiluðu = played
sumir = some
svo = so
syngja = sing
tilboð = offer
tók við = received
tónlist = music
tónlistarmanneskja = musician
tónlistarskóli = conservatory
                       /music classes
tvisvar sinnum = twice
umdeild = critzised
unglingsárum = teens/ youth
uppáhalds = favourite
upp í = up to
urðu = became
vann = won
verðlaun = price
við eigum eftir = we will
vinsæl = popular
ýmist - eða = eiher - or 
ýmsum = various
þakklát = thankful
þegar = when
þýdd = translated
öðrum = other

Declination of some common female nouns
not ending with an "a".

Singular
 
Nominative
sól
björk
mynd
ferð
borg
sveit
Accusative
sól
björk
mynd
ferð
borg
sveit
Dative
sól
björk
mynd
ferð
borg
sveit
Genitive
sólar
bjarkar
myndar
ferðar
borgar
sveitar
Plural
 
Nominative
sólir
bjarkir
myndir
ferðir
borgir
sveitir
Accusative
sólir
bjarkir
myndir
ferðir
borgir
sveitir
Dative
sólum
björkum
myndum
ferðum
borgum
sveitum
Genitive
sóla
bjarka
mynda
ferða
borga
sveita

Öll réttindi áskilin. © Skrudda