Sögubókin
Öll réttindi áskilin.
© Skrudda
Hér geta ungir höfundar
birt eigin
-
ævintýri
-
draugasögur og hryllingssögur
-
gamansögur og brandara
-
ástarsögur
-
dýrasögur
-
geimferðasögur, vélmennasögur og aðrar vísindaskáldsögur
-
sannar sögur
-
sögur af nýju tagi, sem þið finnið upp
Einu sinni var Víkingur sem hét Siggi. Hann fór til
Íslands og fór í Kaupfélagið og keypti
hveiti og brauð. Svo fór í Gullhafið og Símabæ
og hann keypti sér síma í Símabæ. Í
Gullhafinu keypti hann boxer brók. Svo fór hann beint í
skipið sitt og fór að sigla aftur til vina sinna í
og sína þeim nýju boxer brókina sína
og símann sinn. Björk 5 ára.
Fuglinn í skóginum
Einu sinni var fugl sem átti heima í stóru
tré úti í miðjum skógi. Einn daginn
kom stór villiköttur inn í stóra skóginn
og fann hreiðrið uppi í stóra trénu sem fuglinn
átti. Í hreiðrinu voru fimm egg og kötturinn ætlaði
að eyðileggja eggin. En þá kom geltandi hundur
og þá varð kötturinn svo hræddur að hann
flúði í burtu og fuglinn þakkaði hundinum mjög
kærlega og svo héldu þeir mikla veislu.
Kristrún Gunnarsd. 8 ára Hafnarfirði.
Geimverur
Einu sinni voru tvær geimverur sem fóru niður á
jörðina til að gá að vondum dýrum. Þá
kom geltandi hundur og þær urðu svo hræddar að
þær sáust aldrei framar.
KRISTRÚN GUNNARSD.8 ÁRA.
Draugarnir
Einu sinni voru krakkar sem voru í fótbolta. Allt í
einu var þeim brugðið´þegar milljón þúsund
draugar og skrímsli og ófreskjur komu. Svo fóru þau
í fótbolta með krökkunum. Draugarnir, skrímslin
og ófreskjurnar unnu. Þá réðust þau
á krakkana og neiddu þau til að koma í draugahöllina.
Ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha. Endir.
Davíð Guðmundsson 7 ára. Sólvallaskóla
Selfossi.
Bart og teiknibólan
Einu sinni var strákur sem hét Bart Simpson. Hann var
í skóla í Ameríku. Einn dag vildi hann stríða
kennaranum og setti teiknibólu í stólinn hans og þegar
hann settist öskraði hann.
ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ
Hjálmar Gunnlaugur Ingólfsson Fellaskóla Fellahreppi.
7 ára
Ormurinn með marblettinn
Einu sinni var ormur sem hét Olli og Olli rakst á ljósastaur
og hann sá eitthvað fjólublátt og spurði hvort
hinir ormarnir hefðu fengið svona lit og einn hafði fengið
svona lit. Olli spurði hvað þetta væri og ormurinn
sagði að hann vissi ekki hvað þetta væri.
Olli spuði hvað ormurinn héti og ormurinn sagði að
hann héti Dolli og þá sagði Olli við Dolla:
-Við skulum rannsaka hvað þetta er.
Og um leið sagði lítið barn: -Ormur með marblett!
Og Olli varð svo vonsvikinn og sagði: - Barnið er andfúlt!
Harpa Rós
Þórhildur var nýkomin
heim úr jarðarför ömmu sinnar. Þeim tveim hafði
aldrei komið svo vel saman (í raun og veru höfðu þær
óbeit á hvor annari). Hún Þórhildur var
ekkert leið þegar amma hennar dó. Um nóttina dreymdi
Þórhildi að amma hennar kæmi og sagði: "ÞÚ
MUNT FINNA FYRIR MÉR HVERT SEM ÞÚ FERÐ OG ÞÉR
Á EKKI EFTIR AÐ LÍÐA VEL." Og það var satt,
mikill þungi lá á henni um nætur og hana dreymdi
illa, og á daginn fann hún fyrir henni vera að njósna.
Þórhildur hugsaði um það hvort hún væri
skyggn eða hvort hún væri að ímynda sér.
Þórhildur varð alltaf hrædd þegar hún
sá dauð dýr, og amma hennar setti oft dauð dýr
fyrir framan hana. Eina nóttina sagði amma hennar við hana:
"ÞÚ MUNT PÍNAST
LENGI VEL
OG ÉG MUN SÝNA
ÞÉR DAUÐAN SEL".
Svo þegar Þórhildur
vaknaði lá dauður selur við hlið hennar og ógnvekjandi
hlátur heyrðist. Þórhildur fann bók á
bókasafninu sem sagði að ef maður var með draug
hjá sér núna væri hann alltaf hjá manni.
Núna fyrst varð Þórhildur verulega hrædd
og vonaði að amma sín var ekki vofa. En því
miður var hún það og Þórhildur slasaðist
hvað eftir annað. Eina nóttina dreymdi hana að amma
sín kæmi og sagði: "ÉG MUN SJÁ TIL ÞESS
AÐ ÞÚ LIFIR EKKI AF NÆSTU HÁTÍÐARSTUND
ÞÍNA EN ÞÓ GET ÉG PÍNT ÞIG
MEÐ SLYSUM". En næstu jól rétt áður
en þau opnuðu pakkana dó Þórhildur. Vesalings
stúlkan bara af því að henni þótti
ekki vænt um hana ömmu sína.
Maður á veitingahúsi: -Þjónn, það
er heyrnartæki í súpunni minni!
Þjónninn: - HA!
Berglind Guðmundsdóttir 10 ára.
Hafnfirðingabrandari
Einu sinni voru Reykvíkingur, Hafnfirðingur og Akureyringur
sem ætluðu að kasta úrinu sínu niður Hallgrímskirkju
hlaupa niður og grípa það. Reykvíkingurinn
átti að byrja, hann kastaði úrinu niður og hljóp
á eftir því.Þegar hann kom niður lá
úrið brotið á jörðinni.Svo kastaði Akureyringurinn
úrinu sínu og það gerðist það sama.
En svo kastaði Hafnfirðingurinn úrinu sínu niður,labbaði
rólega niður og út, labbaði niðrí bæ
og fækk sér ís og pilsu og fór í bíó.
Svo labbaði hann upp í Hallgrímskirkju og greip úrið,
þá spurðu hinir, hvernig gastu þetta? Þá
sagði Hafnfirðingurinn,ég stilti bara úrið fjórum
klukkutímum of seint.
Rósa Ómarsdóttir 9 ára.
KISAN VILLIMEY
Ég á kisu sem breyttist í risa. Hún fór
með eina löpp ofan í vatn og þá óx
hún og óx af því að vatnið var galdravatn.
Síðan kom fiskur til hennar og hann sagði við kisu
"Viltu koma með mér í sund?"
-Mjáá´, sem þýðir já.
Þá minnkaði kisan aftur og fór að leika
við vini sína. Síðan kom hún heim í
matartíma og borðaði súpu og brauð með osti.
Þá fór hún að sofa. Næsta morgun hitti
hún afa sinn, hann var í bíl og keyrði framhjá
húsinu hennar. Síðan kom risi og hann lét Villimey
fá rós því hún eignaðist kettlinga
í dag.
Edda Stefanía 5 ára
DRAUGAHERBERGIÐ
Kæra Sögubók
Einu sinni var lítið gistihús í Englandi.
Það var mjög gamalt svo það höfðu ekki
margir gist þar árum saman. Svo einn daginn kom loksins fjölskylda.
Í fjölskyldunni var pabbi, mamma og litla stelpan. Fyrst fór
pabbinn og spurði gistimanninn hvort það væri herbergi
til. Þá sagði gistimaðurinn, það er bara
til draugaherbergi. Okey þá tek ég það og
pabbinn fór inn. Þá heyrði hann rödd segja
"Ég er draugurinn í bláu nærbuxunum" og þá
þaut pabbinn út. Þá kom mamman og allt fór
á sömu leið. Svo fór litla stelpan inn og hún
fór í sama herbergið og heyrði rödd segja "Ég
er draugurinn í bláu nærbuxunum". Þá sagði
litla stelpan" Ég er í bleikum viltu skipta?"
Kveðja
Ásrún
HAFNFIRÐINGAR
Einu sinni stóðu 15 Hafnfirðingar fyrir utan Háskólabíó.
Þá kom Reykvíkingur og sagði: Af hverju standið
þið hér í staðinn fyrir að fara á
bíómyndina?
-Við vorum að fara á myndina sem er verið að
sýna en föttuðum þá að hún er bönnuð
innan 16!
REYKVÍKINGABRANDARI.
Einu sinni voru Hafnfirðingur og Reykvíkingur í hellisgöngu
á suðrænni eyju. Fyrst fór Reykvíkingurinn
inn í hellinn og heyrði þá sagt: einn, tveir, þrír,
nú ét ég þig, nam, nam. Hann gerði á
sig af hræðslu og hljóp út náfölur
og æpandi mannæta, mannæta! Hafnfirðingurinn lét
sér ekki bregða og fór inn í Hellinn. Þar
heyrði hann sagt: einn, tveir, þrír, nú ét
ég þig, nam, nam! Hann gáði bakvið stein og
þar sat þá api og var að borða banana. Ha, ha...