Mötuneytið

Hér getið þið sent inn uppskriftir að léttum réttum, sem skólafélagarnir geta matbúið heima hjá sér.

PASTA MEÐ SKINKU OG SPERGILKÁLI
Efni
500 gr. pastaskrúfur
500 gr. spergilkál
4 dl. kjúklingasoð (vatn + kjúklingateningur)
200 gr. Dala-Yrja
1 dl. kaffirjómi
250 gr. skinka
steinselja.

Meðhöndlun:
Sjóðið pastað. Kljúfið spergilkálið í greinar og sjóðið í léttsöltu vatni,
nýtt í 7-8 mín en frosið í 5 mín. Hitið kjúklingasoðið í potti.
Brytjið Dala-Yrju út í og sjóðið saman við vægan hita.
Hrærið kaffirjóma og skinkubitum út í. Hitið.Raðið spergilkáli á disk. Setjið pasta ofan á og hellið heitri sósunni yfir.
Saxið steinselju og sáldrið yfir.

SKYRLÍKI Krakkarnir í Svíþjóð hafa fundið upp aðferð til að búa til skyr úr jógúrt:
Taktu jógúrt og síaðu hana gegnum pappírssíupoka (melittupoka) í kaffitrekt í tvo klukkutíma. Þá færð þú skyr!

Kókosbollur

100 gr. smjörlíki
2 msk. kakó
4 msk.sykur
3 dl. haframjöl
1 msk. vatn

Marengskökur

Þeyttu saman:
3 eggjahvítur
1 bolli sykur
Bættu útí:
2 bollar kornflögur
1/2 bolli hakkaðar hnetur
1/2 bolli brytjað súkkulaði

Öll réttindi áskilin. © Skrudda