
Hér
geta ung skáld birt eigin ljóð og lausavísur!
Skáldatal:
Vindurinn er vinur minn.
En hann er ekki vorberinn.
Vorið fer og haustið kemur
með vin minn með sér.
Vindurinn veldur mér unaði
eins og vonandi þér.
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Eygló Pétursdóttir
Sóldögg
Ung dama i heiminn fæðist
algjörlega óvænt
hún upp að móður sinni læðist.
Allt sem var mér svo kært
skiptir ekki lengur máli
því hjarta mitt brennur
eins og spýtur á báli
uppspretta nýs læks í hjarta mínu
rennur.
Hún skyndilega fæddist
á köldum vetrardegi
en hlýjan að sálu minni læddist.
Ég þetta af öllu hjarta segi
að aldrei í mínu lífi
hefur gleði gripið mitt hjarta jafn mikið
það er eins og ég svífi
aldrei ég þig gæti svikið.
Þú dafnar svo vel litla mín
og ég svo stolt af þér er.
Þú ert eins og hreinasta lín
svo undurfögur þú ert mér.
Mundu að þú getur alltaf til mín
leitað
þegar eitthvað gerist hjá þér.
Ég þér aldrei gæti neitað
sama hvað það er.
(Þetta ljóð er um frænku mína sem var fyrirburi.
Hún fæddist rúmlega 10
vikum fyrir tímann og heitir Sóldögg
María Luisa.)
Ingunn Mýrdal Guðmundsdóttir
|
Er ég hugsa til þín
Ætli þú hugsir til mín
Hvað var það í mér sem þú
sást
Ef ég bara gæti fengið einn koss
Ingunn Mýrdal Guðmundsdottir |
Sárin Gleymast Augu mín fyllast tárum
Þegar þú frá mér ferð
Ingunn Mýrdal Guðmundsdottir |
|
Manstu þá stund
Ingunn Mýrdal |
Eldheit Ást Að haldast hönd í hönd
Þegar skrokkar okkar mætast
Að finna hendina þína
Ég elska þig svo heitt
Ingunn Mýrdal |
|
Að elska fullvaxinn mann
Ingunn Mýrdal |
Vínið er eins og dauðinn
Það er ekkert grín að drekka mikið
vín
Margir sökkva djúpt
Allt i einu fer þráin
Ingunn Mýrdal |
Jóhamar.
Jón Arnar
Jón Arnar í heimsókn hér
hress og kátur mætti
Montinn maður eigi sér
mikilsmennsku vætti
Svana Jóna

Áslaug Maria Þórðardóttir
8ára (býr í Svíþjóð)
Skagamenn
Skagamenn er skondið lið
og skælast inn á völlinn.
Hrannar er með hraustan kvið
og hræðist aldrei tröllin.
Kristján Hrannar Pálsson 10 ára.
Laugardagar
Á laugardögum er gaman,
þá syngja allir saman,
ég borða mikið nammi,
þett er allt í ganni.
Ég fer að öllu með gát,
hér er skák og mát,
ég vann þetta tafl
það var mikið afl.
SIGRÚN BJÖRK 9 ÁRA
![]() |
LJÓÐBROTÉg skrifaði ljóð,fallegt ljóð. Svo kom elding, og ljóðið brotnaði í þúsund mola. |
BERGMÁL
Ég kalla í fjöllin
og bergmálið færist
nær og nær og loks
nær það mér.
VIÐ SANDINNTvær stelpur ganga niður sandinn,sandurinn leikur við fætur þeirra. Rósin ilmar svo fallega. Roði morgunsins brýtur augu þeirra. |
![]() |
Hanna Sigríður Ragnarsdóttir, 12 ára 1.janúar 1997.
Í skólanum.Í skólanum er gaman,þar leika allir saman. Það líður öllum vel er skólatími er. Við syngjum fullt af lögum, og skrifum fullt að bögum. Og það líður öllum vel þegar á skólatíma er. (Lag: Í leikskóla er gaman.) |
|
Hver getur botnað þennan fyrripart?
Blærinn strýkur blíður kinn
ber hann með sér ylinn