Öll réttindi áskilin.© Skrudda

Á þessari síðu getur þú skipst á bréfum við íslensk börn og unglinga um allan heim. Til þess að vera með í bréfaskiptunum  þarft þú aðeins að senda inn stutt kynningarbréf um sjálfa(n) þig og áhugamál þín. Í þessu bréfi þarf helst að standa:

Þú þarft ekki að undirrita allt sem þú sendir inn með nafni. Ef þú finnur upp eitthvert skrautlegt dulnefni, mátt þú nota það.

Hér           getur þú sent inn kynningarbréfið. 
Það verður birt á listanum hér á þessari síðu. 
Þá geta aðrir þátttakendur skrifað til þín. 
Þú getur líka valið einhvern af listanum, sem þú vilt skrifast á við. Þú getur látið stroka þig út af listanum hvenær sem þú vilt með því að senda afbókun á sama netfang. Þú getur líka látið breyta kynningarbréfinu. 
Nýjustu bréfin standa efst á listanum.
Þegar þú hefur fundið einhvern/einhverja á listanum, sem þú vilt skrifast á við, getur þú sent netbréf á netfangið sem stendur í kynningarbréfinu hans/hennar. 
Það er líka hægt að senda netbréf með því að smella á nafnið á listanum. Skrifaðu nafn eða dulnefni viðtakandans í "subject" línuna. 
Það getur tekið nokkra daga áður en viðtakandinn svarar.
Aðvörun 1:  Ef þú færð bréf með viðhengi (attachment) skaltu ekki opna viðhengið nema þú sért með nýtt veiruvarnarforrit. Það geta verið veirur í viðhengjum 
(en ekki í netbréfinu sjálfu).
Aðvörun 2: Ef þú færð bréf  frá einhverjum, sem vill hitta þig persónulega, skaltu ekki svara því, nema einhver fullorðinn, kennari eða foreldri, sé búin(n) að athuga hver þetta sé og að allt sé í lagi.
Hejza allir! Ég heiti Tómas og er 14 árgerð 88. ég verð 15 24 feb
vil gjarna skrifast á við kk og kvk á aldrinum 14-16
netfangið er tomashlidars@msn.com


Mér Langar til þess að eignast netvini á aldrinum 11 til 13 ára, ég er sjálfur 11. Netfangið mitt er Da-bomb@visir.is

 hæ! ég heiti þorstienn. ég á heima á laugarvatni ég er 10 að verða 11 8. ágúst. áhugamál mín eru sætar stelpur.
villt dýr. hestar. körfubolti. fótbolti. rock tónlist. smíða. herleikir. torfærur á hjóli. stökkva á sleða. hafnabolti.
ég á heima í sveit þar sem við eigum hund ketti hestar og kanínur við erum með 17 hesta 6 folöld 1 graðhest sem heitir prins.
besti vinur minn heitir smári og er 14 ára. ég ætla að vinna á tjaldstæðinu í sumar. átt þú hest eða flöld?
netfangið mitt er. mia@mi.is <mailto:mia@mi.is>


Halló. Ég heiti Harry Potter og á heima í Kópavogi (í Mugga heimi). Ég er 12 ára og finnst gaman í handbolta. Netfangið hjá mér er hanness@li.is



Ég heiti Elín Kara á heima í Reykjavík og er fædd árið 1988. Mín áhugamál eru sund, sætir strákar, bíóferðir, hjólreiðar ofl ofl.
Svara öllum sem hafa áhuga á að skrifa mér.
Netfangið mitt er gisla@simnet.is


hæ hæ ! Ég heiti Arnbjörg Edda Kormáksdóttir !  Ég er fædd árið 88,og er 11 og verð 12 28,des. Áhugamál mín eru : sætir strákar, hestar, vinir, böll, tónlist, dans, söngur o.s.frv. Ég vil tala við stelpu og stráka samt mest við stráka.
netfangið mitt er : arnbjorg_88@hotmail.com     bæ bæ skrifaðu :)


Hæ! Ég heiti Sigga og er ´86 árgerð. Ég á heima í Vesturbænum í Reykjavík og helstu áhugamál mín eru að vera á ircinu, fara á skíði, lesa skemmtilegar bækur, vera með vinum mínum og
margt fleira.  E-mailið mitt er sigruna@visir.is 

Ég heiti Grímur og er fæddur 1989 og bý á Hólmavík. Skólinn minn heitir Grunnskólinn á Hólmavík. Áhugamál mín eru fótbolti og Manchester United. Netfangið mitt er grimsi@visir.is


Hæ ég heiti Helga og er 10 ára, ég er fædd árið1989. Áhugamál mín eru hundar, fimleikar, fótbolti, þverflauta o.fl. Netfang: arnig@eldhorn.is


Ég heiti Tinna Björk. Ég fæddist árið 1990. Ég á heima í Hafnarfirði og skólinn er Hvaleyrarskóli. Áhugamál: Sætir strákar og margt fleira. Netfang:tinnabjork@simnet.is


Ég heiti Jóna og ég á heima í  Garðinum,  það  er á Suðurlandi. Ég er í Gerðaskóla. Áhugamál mín eru margvísleg. Plís skrifið mér! Það er svo gaman að fá póst. Ég skrifa oftast langan póst (stundum) Jæja bæ bæ!   NetfanG: runarj@simnet.is


Ég vil skrifast á við krakka í Danmörku á aldrinum 14.Ég heiti Guðrún Andrea. Ég hef ekkert dulnefni. Ég er fædd ár 1985. Ég á heima í  Borgarbyggð. Skólinn minn heitir Varmalandsskóli. Áhuga mál mitt er góð tónlist, hestar og aðeins tölvur. Netfang: gae@hotmail.com


Ég heiti Guðrúnog er fædd árið 1985. Ég á heima í Borgarfirði. Áhugamál mín eru dýr, strákar og tónlist. Ég vil helst skrifast á við krakka á aldrinum 14 ára
Netfangið mitt er gae@hotmail.com


Við erum tvær stelpur sem langar að skrifast á við danska krakka á aldrinum 13-15.
Áhugamál eru hestar og margt fleira.
Við heitum Soffía og Elísabet.


Halló, ég heiti Kristrún. Ég fæddist 22. nóvember 1991. Ég á tvær systur, sem heita Harpa og Gígja. Harpa er 6 ára og Gígja er 1 1/2 árs. Ég á heima í Armherst í New York fylki í Bandaríkjunum. Skólinn, sem ég er í, heitir Smallwood drive elementary school. Mér finnst gaman að spila fótbolta, fara á skíði, synda og fara með pabba mínum í golf. Bless!
Kristrún María Björnsdóttir Netfang: bgunnars@acsu.buffalo.edu


Ég heiti Aron og er fæddur árið 1987. Ég bý á Bifröst og er í Varmalandsskóla. Áhugamál mín eru fótbolti, stelpur, kvikmyndir, tónlist og tölvuleikir. Ég vil helst skrifast á við 12- 13 ára stelpur. Netfangið mitt er aronarsenal@hotmail.com

Hæ hæ, ég er 12 að verða 13, strákur. Ég bý á Varmalandi, sem er lengst úti í rassgati. Áhugamál mín eru fótbolti, sætar stelpur, bíó, tölvuleikir og tónlist. Stelpur I´m all yours.
P.S. Sendu mér á Loverman87@hotmail.com


Hæ! Ég heiti Kayla og er fædd 87. Ég er í B.Ó.
Netfangið mitt er helgibg@simnet.is


Hæ ég er kk árgerð 87 og vil skrifast á við kk og kvk frá 11-14 ára, nafn ógreint.
Áhugamál eru mono, irc, enska deildin, Ricki martin, badminton,
p.s. skólinn er leiðinlegur


Hæ! Ég heiti Siggi og er fæddur 25.05 1990 og er því 9 ára.  Ég á heima í Hollandi og skólinn minn heitir de Bijenkorf eða býflugnabúið á íslensku.  Ég fer í Íslenskuskólann aðra hverja helgi og hitti þá aðra íslenska krakka sem eiga heima í Hollandi.  Mér finnst skemmtilegast í fótbolta og íþróttum yfirhöfuð og líka að leika mér við vini mína og í tölvunni.  Bestu vinir mínir heita Tom og Jochem.  Netfangið mitt er arndis@wxs.nl


Cool Man: Halló! Mér finnst körfubolti mjög skemtilegur. Ég er 11 ára strákur.
Netfang:cool _man_ nr1@hotmail.com


 Hæ, hæ ég heiti Sandra. Ég er 11 að verða 12 ára (Fæddist 1987) og bý í RVK. Áhugamál mín eru dýr, góð tónlist, fótbolti og tölvuleikir. Mér finnst skemmtilegt þegar er sumar og sól. Og að fara seint að sofa. Leiðinlegt finnst mér hins vegar í skólanum þó þar séu margir skemmtilegir krakkar. Ég vildi óska að það væri jafn heitt hér og í Mallorka. Netfangið mitt er Sandra@ja.is



Hæ, hæ.Ég er stelpa frá árinu ´89.Sem sagt að verða 10.Ég bý í Reykjavík og er í Selásskóla.Ég vildi gjarnan eignast penna-vini á aldrinum 9-12, helst í nágrenni við mig. Bless, bless.

P.S.Segi meira um mig seinna, eða þegar þið skrifið.
P.S.2.Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
P.S.3.Ég heiti Eva.



Hæ,hæ allir, Ég heiti Ólöf fædd´84.
Ég vil endilega eignast netvini.Ég á fullt af áhugamálum sem ég nenni ekki að telja upp hér.Ég á heima á suðurlandi. Netfangið mitt er olla84@hotmail.com


Hæ, hæ allir!!
Ég heiti Unnur Lilja og er fædd ´86. Áhugamál mín eru söngur, flautuleikur, tónlist, íþróttir,
börn, vinirnir, strákar og fleira. Netfangið mitt er bjarkris@isholf.is



Ég heiti Helga og ég er fædd árið 1987. Ég bý í Rangárvallasýslu rétt hjá Hellu. Áhugamál mín eru frjálsar íþróttir og að spila á píanó. Skólinn minn heitir Helluskóli. Netfangið mitt er
jonsaem@isholf.is.


Sneezy. Ég er 13 (1986 árgerðin) Áhugamál mín eru: Dýr, Tónlist, og margt margt fleira. Ég á hund og uppáhalds hlómsveitin mín er " Fet boy slim". Ég æfi á píanó. Ég vil skrifast á við STRÁKA jafnt sem stelpur. Reyni að svara öllum bréfum. Svo á ég líka mynd af mér ef það skiptir einhverju máli. Netfangið mitt er aggaz@hotmail.com


Ég er 9 ára og heiti Lilja.Ég bý í Reykjavík og skólinn minn heitir Selásskóli. Áhugamál mín eru að fara í tölvuna, synda,reikna og íþróttir. Netfangið mitt er:bej@wurth.is


Hæ, ég heiti Arnar. Ég er fæddur árið 1986. Ég bý í Namibíu, í Swakopmund og skólinn minn heitir Westside High. Áhugamál mín eru synda í sjónum leika mér á ströndinni, skíði og skautar. Mér finnst gaman að leika við vini mína og hundinn minn og spjalla á irkinu, en mér finnst leiðinlegt að laga til og vaska upp. Ég myndi vilja óska mer að fá fjórhjól og netfangið mitt er aegi@iafrica.com.na


Hæ allir !!!!! Ég heiti Dúa en flestir kalla mig Strumpur (að minnsta kosti núna, ég skipti um nafn í u.þ.b. hverri viku)!!! Ég er árgerð 1984 (lang besta árið) og var búin til á Íslandi (eftir því sem ég best veit) en ég er bara 50% íslendingur, hin 50% eru skosk!!!  Áhugamál mín eru tónlist, Walt Disney (hvað MÈR finnst hann flottur), að ferðast... Já, þetta er svona u.þ.b. allt en ef þú vilt fá að vita meira um mig skrifaðu mér þá á: mrs_tweety@hotmail.com



Ég heiti María Sóley Smáradóttir og ég er 13 ára. Ég bý í Uppsölum, Svíþjóð. Áhugamál mín eru: Að synda, fara á areobics, horfa á seríur í sjónvarpinu, vera á netinu, leika tölvuleiki og hjóla. Uppáhaldshljómsveitirnar mína eru: Sash, The Corrs, GRAAF (í útlöndum heita þær The Graaf sisters) Spice girls (bara Viva 4ever) og Markoolio, (það er sænsk "rap"- hljómsveit. Netfangið mitt er mariasoley@hotmail.com 

Ég heiti Björg og er 13 ára (1985). Ég á heima í Garðinum og skólinn minn heitir Gerðaskóli. Áhugamálið mitt er fótbolti. Ég spila með 3 og 4 flokki kvenna í Víði. Netfangið mitt er valbraut@isholf.is



Black Dragon the Mighty Titan! Hæ! Ég er 10 ára og er frá Hvammstanga. Ég er í grs.Hvammstanga og á heima á Hvammstanga. Veffang: rsrgj@isholf.is. Ég heiti Black Dragon the Mighty Titan!(dulnefni ef þið föttuðuð það ekki) Og ég hef á huga á: Tölvum,hestum, corps köllum og dýrum og elska hunda og ketti! Ég á hund sem heitir (verðið að senda e-mail) og er (e-mail) og kött sem heitir (e-mail) og er (e-mail) Bæ!


Hæ Hæ Ég heiti Jóhanna. Ég er 12 ára en verð 13 ára í júní. Ég á heima á Patreksfirði og er í Patreksskóla. Áhugamál mín eru frjálsar íþróttir,körfubolti og fótbolti. Netfangið hjá mér er joka@simnet.is


Hæ Hæ!
Ég heiti Írisog er í Gerðaskóla í Garði. Ég verð 13 ára í sept.Ég æfi fótbolta og spila í 4.flokki með Víði. Önnur áhugamál mín eru skátar,píanó,skemmtilegir tölvuleikir og nýtt kirkjustarf. Mér finnst skemmtilegast að vera með vinkonum mínum og á fótboltaæfingum.Mér finnst leiðinlegast í skólanum. Netfang:edda@ok.is


Hæ hæ. Ég heiti Áróra. Ég er 10 ára,og bý í R.V.K. og er í Grandaskóla. Ég hef áhuga á: Tónlist,(ekki spice girls) körfubolta, dýrum,bíói og Quarashi. Ég hef líka áhuga á tölvum og irkinu. Mér finnst gaman að vera úti í körfubolta. En helst í góðu veðri. (Ég er fædd 88) Mér finnst leiðinlegt að taka til, og vera í Bláa lóninu. Ég vildi helst óska að ég yrði í hljómsveit þegar ég verð stór.



Leyninafnið mitt er Kríllína. Ég er fædd árið 1988 og er orðin 11 ára. Ég er í Grandaskóla, í fjórða bekk. Áhugamál mín eru fimleikar sem ég æfi 5 sinnum í viku, 2. klukkutíma í senn. Önnur áhugamál er körfubolti, pox, sund, fótbolti, handbolti, snú-snú og margt fleira. Mér finnst gaman að öllum áhugamálunum mínum. Mér finnst leiðinlegt í barbí og dúkkó. Ég óska mér að fara til Ameríku. lalla@centrum.is


Ég heiti Steinar og fæddist árið 1985, ég bý á Suðurlandi (Íslandi). Áhugamál mín eru dýr, að hjóla, baka, elda og að vera í tölvu. Mér finnst gaman í fótbolta, körfubolta og handbolta. Netfangið mitt er baldur@eyjar.is


Halló ég heiti Brynja og er fædd 88. Ég á heima í Kópavogi, skólinn minn heitir Smáraskóli. Áhugamál mín eru: Hestar, hundar(og flest dýr,)spice girls,sund og margt fleira. Mér finnst gaman að leika úti, fara í útilegur, og allt. Það leiðinlegasta er að vera ein. Netfang: SJO@isholf.is 


Ég heiti Kolli (dulnefni) og er 15 ára en verð 16 í maí. Ég á heima á Seyðisfirði og geng í Seyðisfjarðar skóla. Áhugamál mín eru fótbolti,skíði,tónlist og stelpur. Aðal áhuga málið mitt er fótbolti og stelpur og vill helst skrifast á við stelpu kveðja kolli. Netfang: botnar@isholf.is


Ég heiti Sprettur(dulnefni) og er fæddur árið 1987.Ég á heima á Ólafsfirði og er í Barnaskóla Ólafsfjarðar. Áhugamál mín eru: fótbolti, skíði, góð tónlist, hljómsveitir, tölvur og netið. Það er gaman að lifa (oftast) en leiðinlegt að missa einhvern sem manni þykir vænt um. Netfang mitt er srsigga@ismennt.is



Hæ ég heiti Svana Jóna og er fædd 1984 10 maí. Ég á heima í Skagafirði. Áhugamál mín eru fótbolti, körfubolti, frjálsar íþróttir, diskótek og fleira. Ég á tvo hesta og einn hund. Ég á heima í sveit og er í Grunnskólanum að Hólum. Ég er 170 cm, 50 kg, með grá blá augu og er skolhærð. Ég á líka sérnetfang en það er s_jona@hotmail.com Ég vildi gjarnan eignast einhverja pennavini ef það er hægt. Það er alveg hægt að send í mitt eigið netfang.


Hæhæ ég heiti Vigdís og er kölluð Vigga. Ég er 15 ára, í 10. bekk í Hagaskóla sem er Vesturbænum í Reykjavík. Áhugamálin mín er hrikalega mörg en nokkur af þeim eru tónlist, aerobic, ferðast, meiri tónlist og miklu fleira. Mér finnst gaman að senda og fá e-mail, vera með vinum mínum, lesa og langskemmtilegasta sem ég geri er að hlusta á tónlist en ég er algjör tónlistarfíkill, ég spila á þverflautu og finnst gaman líka að syngja og þannig... Mér finnst ekkert sérstakt mjög leiðinlegt nema bara leiðinlegt fólk. Ég óska mér heldur ekki neins sérstaks en..... hér er e-mailið mitt: vigsig@vortex.is


Halló, halló! Ég er að lýsa eftir pennavinum, og ég heiti Ebba. Ég er fædd 1984, og bý í sveit á Suðurlandi. Áhugamál mín eru mjööög margvísleg. Þar á meðal eru öll dýr (ja, svona næstum), tölvur, góðar bækur, tölvur, góðar bíómyndir, tölvur, irc, badminton, tónlist, ferðalög, margtmargtmargtmargt meira, og svo seinast en ekki síst, tölvur. Fyrir þá sem hafa nennt að lesa þetta allt, og vilja endilega tjá sig um eitthvað sniðugt, eða bara argast í mér fyrir að skrifa svona
fáránlegan texta, þá er e-mailið mitt ingaebba@hotmail.com



Halló ég heiti Guðrún Þóra ég er 18 ára. Ég bý á Selfossi. Áhugamál mín eru dýr, tónlist, og margt fleira. Netfang gudbal@ismennt.is

Sæl öll! Ég er kallaður Addi, ég er 16 ára og bý í Toronto, Kanada og áhugamál min eru: sund, skátar, skák, skíði og körfubolti. Netfangið hjá mér er bergljot@istar.ca



Fanney Hæ ég heiti Fanney og er 15 ára. Ég bý rétt hjá Akureyri og er í Hrafnagilsskóla. Áhugamál mín eru íþróttir, stærðfræði og þverflauta. Netfang:hrun@nett.is
Kveðja. Fanney


Heiða Ég heiti Heiða, ég er 13 ára. Ég á heima rétt hjá Akureyri í Eyjafjarðarsveit og skólinn minn heitir Hrafnagilsskóli. Áhugamál mín eru að fara í tölvuna, synda, reikna og íþróttir. Netfangið mitt er: hrun@nett.is



Donna Halló, ég heiti Donna (dulnefni) og ég er 16 ára verð 17 í ágúst. Skólinn minn heitir Seyðisfjarðarskóli og ég á heima á Seyðisfirði að hluta til, foreldrar mínir eru skilin. Pabbi minn á heima í Reykjadal. Ef þið vitið ekki hvar það er það nálægt Húsavík. Þar á hann bóndabæ. Ég fer til hans í fríum og á sumrin.Þar á ég mörg dýr. Eitt af því er hestur. Hann er meri og heitir Hreta, hún er rauð og ákaflega góð. Mér finnst hestar æðislegir og fer oft á hestbak þarna .Á þessum bæ eru einnig tvær systur mínar,en ég á þrjár og einn bróður. Bróður minn býr á Seyðisfirði og þriðja systir mín býr í Grindavík. Mér finnst leiðinlegt að laga til og í sumum fögum í skólanum. Mér finnst gaman að ummgangast dýr og vera í íþróttum. Ég vildi óska að geta búið hjá pabba í eitt ár. Netfangið mitt er bmj@ismennt.is



BBS Ég heiti BBS og er í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Ég er 15 ára. Áhugamál mín eru fimleikar, píanó og margt fleira. Mér finnst gaman að fara á fimleikaæfingar og í útileiki en leiðinlegast finnst mér að fara snemma að sofa og taka til í herberginu mínu. Netfangið mitt er sigurgsv@ismennt.is



*1?+?-4$5#6 Ég er 16 ára stelpa og hef gaman af fótbolta, dansi, píanói, kórsöng, karate og fleiru. Ég safna servéttum. Ég er í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Mér finnst leiðinlegt að fara snemma í háttinn og vakna snemma. Besta vinkona mín heitir Lovísa. Dulnefnið mitt er *1?+?-4$5#6 Ég nota netfangið hennar mömmu en það er asrun@ismennt.is


Rósa. Ég er 14 ára. Skólinn minn heitir Grandaskóli. Ég er í þriðja bekk. Áhugamál mín eru ballet, skautar, amerísk tónlist og klassísk tónlist. Mér finnst skemmtilegast í Barbie og að gista hjá vinkonum mínum. Sérstaklega Helgu. Uppáhalds maturinn minn eru pizza og pasta. Uppáhaldssjónvarpsrásirnar mínar eru MTV, Cartoon Network og Stöð 2. Uppáhalds bíómyndin mín er Clueless. Uppáhalds hljómsveitin mín er Fugees. Netfang: omar@treknet.is



Soffia Ég er 18 ára og á heima í Järna.Og skólinn sem ég er í heitir Tavestaskólinn. Áhugamál mín eru: SKATE- BOARD, skrifa bréf og vera með vinum mínum. Uppáhaldshljómsveitirnar mínar eru: PETER ANDRE, B.S.B, FUGEES, EAST 17, CONSOUL, CRANEBERRIES og margar fleiri. Ég vill gjarnan fá svar. Netfang: mellan@skola.telia.com


Ragnar Ég heiti Ragnar. Ég er 15 ára. Skólinn minn heitir Vaksalaskolan og er í Uppsölum. Áhugamál mín eru: golf, sund, körfubolti, músík, til dæmis Oasis eða Nirvana. PEACE. Netfang: eyesland@algonet.se