Bókasafn Fjarskólans
Öll réttindi áskilin. © Skrudda
Barnasíða Vefbókasafnsins

Á þessari síðu getur þú látið alla vita um skemmtilegar og spennandi bækur. Þú getur líka skrifað ritdóm um bókina. Í ritdómnum á að standa:

Hér getur þú sent ritdóm til Fjarskólans. Yfirskriftin á að vera bókasafn og þú getur undirritað hann með nafni eða dulnefni.

Ef margir skrifa um sömu bók, verður sett upp umræðusíða um hana. Þá getur þú lesið, hvað allir hafa skrifað um hana.

Þau sem vilja geta tekið þátt í lestrarkeppni. Þið þurfið aðeins að skrifa í ritdóminn, hversu margar blaðsíður bókin var. Eitt stig verður gefið fyrir hverjar 10 síður. Hver keppnisumferð hefst um jólin og lýkur 31. maí næsta ár. Úrslit verða birt á þessari síðu.


Dagbók Berts eftir A. Jacobsson og S. Olsson !!!!!
Þessi bók gerist í Svíþjóð á okkar tíma. Þar er sagt frá Bert, Áka vini hans og mörgu öðru fólki. Þeir lenda í ýmsum æfintýrum og hafa gaman af. Mér fannst bókin skemmtileg vegna þess að Bert er svo mikill rugludallur og vitlaus.

Enid Blyton: FIMM Á FLÓTTA
Sagan gerist heima hjá Georgínu. Faðir Georgínu fer burtu og skilur krakkana eftir hjá konu sem sér um húsið á meðan. Þau flýja út í Fagurey og komast að því að konan og maðurinn hennar eru með eitthvað illt á prjónunum. Söguhetjurnar eru sömu og í fyrri fimm bókum: Georgína, Anna,Júlli og Jonni. Bókin er mjög góð. Sendandi Slummi.

Þorgrímur Þráinsson: MITT ER ÞITT

Þessi saga gerist á Íslandi í Reykjavík um vetur í Mars. Aðalpersonur eru Tryggvi, Skapti, Kiddi og Sóley. Bókin er um krakka sem búa í Reykjavík og svo verður Tryggvi sakaður um þjófnað sem hann gerði ekki. Svo er þeir strákarnir eru búnir að komast að ýmsu flytur Sóley vinkona Kidda til Reykjavíkur og vill hjálpa þeim en svo verður Sóley rænt og þá rannsaka strákarnir það og svo endar sagan.(Á.M.)

GRILLAÐIR BANANAR

Mæðgurnar Ingibjörg Möller og Fríða Sigurðardóttir fengu barnabókaverðlaunin 1996 fyrir skáldsöguna "Grillaðir bananar". Sagan er spennandi og fjallar um ævintýraferð nokkurra ungmenna um óbyggðir Íslands.

Enid Blyton: ÆVINTÝRAFJALLIÐ

Sagan er um fjórmenningana og Kíkí, sem verða fangar í afskekktustu fjöllunum í Wales, þar sem brjálaður vísindamaður gerir tilraunir sínar. Hún er spennandi og skemmtileg. (D.E.)

Enid Blyton: FIMM Á FAGUREY

Sagan er um fjórmenningana og Tomma, sem fara til Fagureyjar og góma bófa, sem ætla að stela gulli langa langa langa langa langa afa Geoprgs. Sagan er skemmtileg, ævintýraleg og spennandi. (D.E.)

Hjörtur Gíslason: SALÓMON SVARTI OG BJARTUR

Sagan er um að löggan vill ekki að Salómon svarti eigi að vera í bænum. Bókin er fyndin og spennandi. (S.J.)

Ole Lund Kirkegaard: FRÓÐI OG ALLIR HINIR GRÍSLINGARNIR

Fólkið sem á heima í húsinu á horninu og Fróði grimmi gera ýmis brellibrögð. Dæmi: Líf og fjör á götunni og fótur í fötu. Sagan er skemmtileg, því Fróði og Simmi voru að gera Úlfi brellibrögð og ungfrú Lóa og Írena voru skemmtilegar og hlógu mikið. (M.H.)

Ole Lund Kirkegaard: ANTON OG ARNALDUR FLYTJA Í BÆINN

Sagan er um tvíbura og vin þeirra. Þeir gerast frostbræður og gera allskonar prakkarastrik. Hún er fyndin.(V.S.)

Ole Lund Kirkegaard: ANTON OG ARNALDUR Í VILLTA VESTRINU

Sagan er um þrjá prakkara, sem taka upp á ýmiskonar vitleysu. Hún er sprenghlægileg. (V.S.)

Christine Nöstlinger: NÝJAR SÖGUR AF FRANS

Sagan gerist í Þýskalandi. Hún er um Frans og vini hans. Frans er sjö og hálfs árs. Hann er með krullótt hár. Frans lendir í allskonar ævintýrum. Sagan er í meðallagi skemmtileg.(V.S.)

Einar Kárason: DIDDA DOJÕJONG OG DÚI DUGNASKÍTUR

Sagan gerist á Íslandi fyrir tveimur til þremur áratugum. Didda og Dúi lenda í alskonar ævintýrum og Öskjuhlíðinni í Reykjavík. Þau fanga innbrotsþjófa. Sagan er skemmtileg af því að hún er spennandi.(V.S.)