Upphaf
Þú ert stödd/staddur í litlum kaupstað í
Vestur- Noregi árið 888. Þú ert á flótta
undan Haraldi sköllótta, sem er búinn að sölsa
undir sig völdin í Noregi. Faðir þinn var ríkur
höfðingi, sem barðist gegn Haraldi. Haraldur sigraði föður
þinn og brenndi bú ykkar, drap báða foreldra þína
og sór að útrýma allri ykkar ætt. Þú
hefur falið þig allan veturinn hjá gamalli völvu
í skóginum. Hún kenndi þér forn fræði
og spáði fyrir þér. Eina nótt um vorjafndægur
sat hún við eldinn og reyndi að sjá, hvað nornirnar
höfðu spunnið handa þér. Þá rak
hún skyndilega upp óp, féll froðufellandi á
gólfið og engdist sundur og saman. Þegar hún rankaði
við sér, starði hún á þig stórum
augum og tautaði eitthvað óskiljanlegt fyrir munni sér.
Þú spurðir, hvað hún hefði séð.
Hún mælti: -Eigi veit ek, hvárt þér fylgir
hamingja eður óhamingja, en hvár sem er, þá
er hún meiri en annarra manna. Far þú at vári
til Sætúna ok freistaðu gæfunnar.
Og nú ert þú við höfnina í Sætúni,
dulbúin(n) sem flakkari, en með a. m. k. 100 merkur silfurs
í beltinu. Þetta hafðir þú tekið með
þér nóttina sem þú flúðir úr
logandi föðurhúsum. Þú gengur inn á
öldurhús og kaupir krús af öli, brauð og ost.
Þar eru margir menn að hlusta á ferðalang, sem segir
sögu sína.
Þú sest þar hjá og hlustar
á sögumann.
Þú sest þar hjá og gefur
engan gaum að sögumanni.
Þú hlustar á sögumann
Sögumaður er nýkominn frá Eldlandi. Hann er að
lýsa landinu og ævintýrum sínum þar. -Ég
veit, að þið trúið því ekki, en á
Eldlandi eru til heitar lindir, þar sem sjóðandi heitt
vatn rennur upp beint úr jörðinni. Stundum sprautast það
margar mannhæðir í loft upp, og í nokkrum lindum
er blár leir, sem sýður eins og grautur.
Þú sérð, að flestir áheyrendur hrista
höfuð sín eða hlæja. Enginn virðist trúa
þessu.
-Ég hitti þar líka mann, sem sagði að jörðin
hefði eitt sinn skolfið ógurlega. Síðan hafði
eitt fjallið opnast og spúið eldi og eimyrju í hálft
ár. Hann sagði, að það hlyti að vera risastór
dreki eða einhver annar óvættur í fjallinu, en
hann sá það aldrei með eigin augum.
Nú skella flestir áheyrendur upp úr. En sögumaður
heldur ótrauður áfram. - Það búa örfáir
á þessu landi. Á nokkrum stöðum hafa menn
numið land, en mest allt landið er enn þá ónumið.
Það er viði vaxið milli fjalls og fjöru, þar
er mjög góð fuglaveiði, þar er hægt að
rækta hafra, beitilöndin eru endalaus og árnar eru fullar
af fiski.
-En það er ekki hægt að leita fjár og frama
í óbyggðu landi, andmælir einn gestanna. Þess
þarf að leita í suðurveg.
Segðu það ekki, segir ferðalangurinn. Ég hef
heyrt, að mesta gersemi heims sé falin á Eldlandi. Þar
er stór dalur, sem sagður er vera hóffar Sleipnis, hests
Óðins. Einhvers staðar á yfirreið sinni um Eldland
týndi Óðinn hring sínum, Draupni, sem gefur af
sér níu aðra gullhringa níundu hverja nótt.
Nú er áheyrendum nóg boðið. Þeir
snúa sér frá sögumanni og sumir fara. Eftir situr
sögumaður og hristir höfuðið. Þú getur
nú valið að tala meira við sögumann
eða fara að sofa.
Þú gefur engan gaum að sögumanni
Þú sest út í horn og reynir að láta
lítið á þér bera. Þú tekur
ekki eftir því, að veitingamaðurinn horfir á
þig grunsemdaraugum. Eftir stutta stund bregður hann sér
frá. Þegar hann kemur aftur, virðist hann vera mjög
taugaóstyrkur. Hann heldur áfram að vinna við mat
og ílát, en lítur við og við út um
gluggann. Allt í einu heyrist mikið vopnabrak og þú
sérð að menn Haraldar sköllótta umkringja öldurhúsið.
Síðan ryðjast fjórir þeirra inn og ganga beint
að þér.
Samanlögð bardagahæfni þeirra er 30 stig. Þú
verður að berjast. Ef svo ólíklega vill til, að
þú sigrir, getur þú reynt að
hlaupa niður á bryggju og komast á skip, en þú
hefur þá engan útbúnað með þér.
Ef þú tapar, þá..............

Þú talar meira við sögumann
Þú sest hjá sögumanni og spyrð hann spjörunum
úr um Eldland. Hann heitir Gestur. Hann segir að hann ætli
sjálfur aftur til Eldlands eftir nokkra daga. -Ég þekki
stýrimann, sem ræður yfir skipi. Hann ætlar að
sigla til Eldlands að tveimur dögum liðnum. Hann vantar menn
og farm og þú getur sennilega fengið að flytja ýmsan
varning með honum ef þú hjálpar til við róðurinn.
En ef þú vilt búa þig betur undir förina
og átt eitthvað af peningum, getum við tveir keypt skip
í félagi og farið á eigin skipi til Eldlands.
Þá höfum við líka nógan tíma
til að undirbúa ferðina.
Þú segist ætla að ákveða þig
að morgni. Síðan ferð þú að sofa. Um
nóttina dreymir þig dreka, sem liggur á stórum
haugi af gullhringum. Einn hringanna er öllu mestur, og þú
sérð að af honum drjúpa aðrir gullhringar. Þú
teygir þig fram til að ná í hann, en þá
læsist kjaftur drekans um þig. Þú vaknar, og sól
skín á lofti. Þú þarft að ákveða
þig.
Þú ákveður að fara með næsta skipi
til Eldlands.
Þú klæðir þig og gengur niður að höfn,
ákveðin(n) að finna skipið, sem Gestur sagði þér
frá. Gatan er mjög óhrein og rottur og svín hlaupa
um allt. Á leiðinni ferð þú fram hjá
litlu timburhúsi. Þar er skilti fyrir ofan dyrnar og á
því stendur skilti, þar sem orðið VOPN er ristað
með rúnum.
Vilt þú fara inn í búðina?
Eða vilt þú fara beint niður að
höfninni.

Þú ferð inn í búðina.
Þú ferð inn í búðina. Hurðin er
gömul og það brakar í henni þegar þú
ferð inn. Inni í hálfrökkrinu situr gamall maður,
sem einbeitir sér við að brýna mjög fallegt
sverð. Það glampar á það þegar dagsbirtan
að utan kemur inn um dyrnar. Manninum bregður og hann stingur sverðinu
snöggt í slíðrið. -Hvað vilt þú,
segir hann með titrandi röddu og gengur hægt aftur á
bak upp að vegg.
Þú segist vera þar til að kaupa vopn og að
þú viljir honum ekkert illt. Þá gefur hann frá
sér feginsandvarp og spyr, hvaða vopnum þú hafir
helst áhuga á. Hér getur þú keypt öll
vopn sem þig vantar. Þau kosta jafn margar merkur silfurs og
þau vega í vættum. (Sjá Vopn
og bardagar) Hér er líka til 20 faðmar af reipi,
fiskinet, 100 önglar og sólarsteinar. Hvert um sig kostar eina
mörk silfurs. Þegar þú ert að velja þér
vopn, spyr maðurinn hvert þú sért að fara.
Þegar þú segist vera á leiðinni til Eldlands,
rekur hann upp óp og segir: Það er margt illt á
Eldlandi. Drekar, tröll og aðrar óvættir leynast
undir hverjum steini. Þegar þú segist samt ætla
að fara þangað, segir hann:
 |
-Ef þú vilt fara til Eldlands, þarft þú
á góðu sverði að halda. Hann dregur upp sverðið,
sem hann var að brýna. Þegar hann dregur það
úr slíðrum, fer það að loga eins og sólin
sjálf. Þú verður að halda hönd fyrir augun.
Maðurinn slíðrar þá aftur sverðið.
Síðan segir hann: -Þetta sverð átti faðir
minn og faðir hans á undan honum. Ég átti að
gefa syni mínum þetta töfrasverð, en ég á
engin börn. Því gef ég þér það.
Örlögin hafa sent þig hingað einmitt á þessari
stundu.Sverðið eykur bardagahæfni þína um 20
stig. Þegar þú heldur því yfir höfði
þér, lýsir það upp umhverfið og blindar
alla, sem á það líta. Maðurinn gefur þér
sverðið og þú þakkar honum fyrir gjöfina
og kveður hann með virktum. |
Þú gengur niður að höfn. Það
er markaður við höfnina. Fjöldi fólks gengur á
milli söluborðanna. Veðrið er hlýtt og léttur
blær andar úr vesturátt. Í einu horni markaðstorgsins
eru ferhyrndar girðingar. Þar eru seldir hestar, kýr,
kindur, geitur, hæns, hundar, svín og þrælar.
Í höfninni eru tíu skip og meir en tuttugu litlir fiskibátar
eru bundnir við gamla bryggju, sem viðist geta hrunið við
minnsta árekstur.
Vilt þú fara á markaðinn?
Eða vilt þú fara beint niður að
höfninni.

Þú ferð á markaðinn.
Á markaðnum er sterk lykt. Hún kemur frá gömlum
sjómanni, sem er að selja fisk. Hann er að tala við
annan sjómann, og þú getur ekki annað en heyrt,
hvað þeir segja. - Nú er hann Gráskeggur gamli
alveg að ganga af göflunum, segir fisksalinn.
-Já, það eru margir, sem flýja úr klóm
Haraldar sköllótta til annarra landa. En að fara til Eldlands
er að fara úr öskunni í Eldinn.
-Hann ætlaði víst að fara á morgun, en
hann vantar enn þá menn, og fáir eru þeir sem
dirfast að sigla til Eldlands. Hann verður að bíða
í marga mánuði eftir mannskap, eða gefast upp ella.
Báðir reka upp skellihlátur.
Þessi Gráskeggur, sem þeir töluðu um, hlýtur
að vera stýrimaðurinn, sem Gestur sagði frá.
Vilt þú spyrja sjómanninn um Gráskegg
eða athuga markaðinn betur, eða
fara beint niður að höfninni.
Þú ferð beint niður að höfn
og gengur út á bryggjuna. Þú sérð
nokkra litla fiskibáta sigla út og sjómenn, sem eru
að bera fullhlaðna kassa af fiski að markaðnum. Við
bryggjuna eru líka 10 stór víkingaskip. Á einu
þeirra stendur maður með sítt, fléttað
grátt skegg. Sorgmæddur á svip hallar hann sér
að borðstokknum. Skip hans er gamalt og seglið slitið.
Vilt þú spyrja hann um far til Eldlands
eða athuga markaðinn betur?
Þú spyrð sjómanninn um Gráskegg.
Þá verður hann strax fúll á svip og mælir:
- Eigi veit ek, hvaða erindi þú átt við Gráskegg,
en hann á ljótasta skipið við bryggjuna og hann er
með sítt, grátt skegg. Ef þú ferð niður
á bryggju, finnur þú hann örugglega.
Vilt þú athuga markaðinn betur,
eða fara beint niður að höfninni?
Þú athugar markaðinn betur.
Það er furðulegt, hve margt er selt þar. Þrælar,
húsdýr, vopn, klæði, timbur, korn, öl, brauð
og silfurmunir.
Ert þú stúlka eða piltur?
Framhaldið ræðst af því!

Þú ferð að sofa.
Þú leigir herbergi hjá veitingamanninum, ferð upp
og leggst í rúmið. En þú getur ekki sofnað.
Þú liggur andvaka og hugsar um Eldland. Allt í einu
heyrir þú undarlegt gól úti í horni.
Það er ömurlegt og örvæntingarfullt, og það
er eins og það komi úr öðrum heimi. Þér
finnst eins og það seiði þig til sín og hræði
þig frá sér samtímis. Í dauðans skelfingu
ríst þú upp og spyrð: -Hver er þar?
Þá sérðu bláa gufu, sem sfnast saman
í horninu og tekur á sig mannsmynd. Þetta líkist
þó engum manni, heldur beinagrind, sem er þakin undarlegri,
lýsandi, blárri gufu. Veran talar til þín djúpri,
titrandi röddu: - KOM.... KOOOOOM.......... KOOOOOOOOOM....
Þetta er draugur (bardagahæfni 1000). Ef þú
ert
goði, völva, seiðkona
eða munkur getur þú sloppið auðveldlega.
Ef ekki, verður þú að berjast
við drauginn!
Þú verður að berjast við drauginn!
Því miður hefur þú ekkert samband við
æðri máttarvöld. Í hvert sinn sem þú
reynir að ná taki á draugnum, grípa hendur þínar
í blauta, kalda slepju, og þú nærð engu taki
á honum. Ef þú reynir að höggva til draugsins
með hnífnum þínum, skerst hnífurinn viðstöðulaust
gegnum bláa gufu. Þú finnur að þú
missir máttinn. Nú ráða örlög þín
og bardagahæfni úslitum. Ef þú hefur minna en
6 stig í gæfu og kunnáttu samanlagt, tapar
þú. Ef þú hefur sex stig eða meira í
gæfu og kunnáttu samanlagt, getur þú talað
við drauginn.
Þú veist
að þú mátt ekki sýna neina hræðslu,
þá nær draugurinn valdi á þér. Þú
horfir fast á drauginn og spyrð: -Hver ert þú?
Draugurinn keður þessa vísu:
Nár em ek í Niflheimi
nefnisk Geirröður
á í holu
hring góðan
sá varð minn bani
í beði þínum
því vil ek blóð
bergja lifenda. |
 |
Þú skilur, að draugurinn er andi manns, sem hefur hefur
búið í þessu herbergi. Hann hefur átt dýran
hring og einhver hefur drepið hann til að fá hringinn. En
hringurinn er falinn í holu.
Þú stekkur að draugnum og grípur beinið,
sem er í miðri gufunni. Þá hverfur draugurinn og
þú ferð með beinið út og grefur það
í jörð. Draugurinn hefur nú fengið frið.
þú ferð aftur inn og leitar í horninu, þar
sem draugurinn birtist. Þar finnur þú holu, og í
henni er gullhringur, sem er að minnsta kosti 100 marka virði.
Bættu þessari upphæð við sjóð þinn.
Þú ferð að sofa og vaknar aftur hress að morgni.
Þú ákveður að fara niður
að höfn.
Þú ákallar æðri máttarvöld
og særir drauginn aftur til Heljar. Þú ferð að
sofa og vaknar aftur hress að morgni. Þú ákveður
að fara niður að höfn.
Þú kaupir skip í félagi við Gest.
Nokkrar vikur líða, og þú kaupir skip í
félagi við Gest. Á meðan þú bíður
í Sætúnum býrð þú í
öldurhúsinu. Eina nóttina dreymir þig, að
völvan sem þú bjóst hjá, segi við þig,
að þú verðir að flýja, helst til annarra
landa. Þú getur valið að
fylgja ráðum hennar,
fela þig hjá bónda, sem
þú þekkir,
bíða rólega í Sætúnum
eftir skipi, eða
fela þig í skipi, sem er að
leggja úr höfn.
Þú kaupir eigið skip.
Þú hugsar þér, að draumurinn geti þýtt
bæði frama og auðlegð, en líka hættur. Þú
ákveður samt að kaupa eigið skip og ferð á
öldurhúsið. Þar hittir þú víking,
sem er nýkominn úr ævintýraríkri siglingu.
Hann er reiðubúinn að selja þér skip sitt og
kveðst vera búinn að fá nóg af sjómennsku
og ævintýrum um sinn. Þið farið saman niður
að höfninni. Þar liggur skip hans við festar og þið
farið um borð. Hann spyr, hvert þú hafir hugsað
þér að sigla og þú svarar, að þig
langi til að freista gæfunnar á Eldlandi. Honum bregður
nokkuð og honum þykir þú djörf/djarfur. Hann
segist hafa átt vin, sem missti lífið í ferð
til Eldlands. En hann óskar þér samt góðrar
ferðar. Það verður úr, að þú
kaupir skipið af honum fyrir 100 merkur silfurs. (Ef þú
átt ekki 100 merkur, verður þú að skulda honum
afganginn. En þá á hann helminginn af öllu, sem
þú kemur með aftur úr Eldlandsferðinni.
Ánægð(ur) með kaupin, en hugsi, gengur þú
frá höfninni. Skyndilega kemur maður á móti
þér og ávarpar þig. Hann kveðst hafa heyrt
samtal þitt við víkinginn á öldurhúsinu
um að kaupa skip. Hann segist þekkja menn, sem vilja fá
skiprúm. Maðurinn er frekar ógeðfelldur og það
leggur illan daun af honum. Þú ákveður samt að
fylgja honum á fund mannanna, til að sjá, hvort þér
líst á skipshöfnina.
 |
En þegar þið komið inn í þröngt
húsasund, koma skyndilega fram þrír aðrir menn
og ráðast að þér til að ræna þig.
Þú veitir öfluga mótspyrnu, en þú
átt við ofurefli að etja. Þá birtast allt í
einu 3 aðrir menn, sem sjá ræningjana ráðast
á þig. Þeir draga upp vopn sín og koma þér
til hjálpar. Hinir gera þá gagnárás.
Það er barist upp á líf og dauða. |
Ræningjarnir hafa samanlagt 180 stig af bardagahæfni. Hjálparmenn
þínir hafa 120 stig og þín eigin stig bætast
við. Örlögin ráða, hvort þið sigrið
eða tapið.
Þú gengur niður að höfn.
Þar sérð þú tíu víkingaskip
liggja við bryggju. Margir fiskibátar sigla út og inn
um hafnarkjaftinn. Þú gengur að glæsilegasta víkingaskipinu
og skoðar það betur. Það kemur kunnuglega fyrir
sjónir. Allt í einu gengur maður fram til þín
og heilsar þér kunnuglega. Þá þekkir þú
hann. Þar er kominn Úlfur Skarði, fóstbróðir
föður þíns. Skipið er víkingaskip föður
þíns, sem Úlfur hefur fengið að láni
í tvö ár til að herja í vesturveg.
Þú segir Úlfi alla söguna um fall foreldra
þinna og yfirgang Haraldar sköllótta. Þegar hann
hefur heyrt sögu þína, verður hann þungbúinn
á svip. Svo segir hann hægt og festulega: -Ég var fóstbróðir
föður þíns og það er nú skylda mín
að hefna hans og drepa Harald sköllótta sjálfan
eða einhvern af ættmönnum hans, þó að það
kosti mig lífið. En skip þetta er föðurarfur
þinn og þú mátt gera við það hvað
sem þú vilt. Ég ræð þér til
að sigla því til Eldlands og leita gæfunnar þar.
Áhöfnin er fús til að fylgja þér. Komdu
aftur eftir nokkur ár og leitaðu hefnda á Haraldi, ef
hann lifir þá enn.
| Þú kveður Úlf og hann leggur byrðar á
bak sér og fer á markaðinn að kaupa sér hest.
Þú ferð sjálf(ur) á markaðinn og kaupir
nauðsynjar og hleður þeim á skipið. Síðan
segir þú áhöfninni að róa út
úr höfninni og setja upp segl. |
 |
Þið sigrið.
Móður eftir viðureignina þakkar þú mönnunum
hjálpina og spyrð eftir nöfnum þeirra. Þeir
segjast heita Dagur, Bárður, Vopni, Þorleifur og Brandur.
Þér geðjast vel að mönnunum, sem eru sterklegir.
Þú segir þeim frá fyrirætlunum þínum
og spyrð, hvort þeir séu reiðubúnir að
fylgja þér til Eldlands. Eftir nokkrar umræður samþykkja
þeir boð þitt, sem er; -að þú fáir
fjórðung af þeim sjóðum sem þið kunnið
að finna, en þeir skipti þremur fjórðuhlutum
á milli sín. Þú ert ánægð(ur)
með að hafa fengið þá félaga með þér
og byrjar að skipuleggja þau innkaup, sem þarf að gera.
Þegar þú hefur keypt nauðsynjar, gangið
þið niður að höfninni, þar sem skipið
þitt liggur. Þegar þið nálgist hafnarbakkann
sjáið þið 4 af mönnum Haraldar sköllótta,
og þeir standa vörð við skipið. Þið spyrjið
eldri konu, sem er að selja ávexti, hvort hún viti hvað
hefur gerst. Konan segir, að það hafi komið 20 manna
lið og rannsakað skipið, en ekki tekið neitt með sér.
Þeir hurfu síðan á brott, en skildu eftir 4 manns.
Þið eigið nú þá kosti að leggja
til atlögu við óvinina
eða finna annað skip.
Þú spyrð Gráskegg um far til Eldlands.
Hann virðist gamall og slitinn, en furðu greindarlegur. Hann hefur
síðan hött á höfði og bót fyrir
öðru auganu. Hann býður þig velkomna(inn) um
borð. Næsta morgun setjið þið
upp segl.
Þú gengur um á markaðnum.
Þar eru kaupmenn frá allri heimskringlunni sem bjóða
út vörur sínar. Hér er allt sem þig hefur
dreymt um. Þarna er líka stórt litofið sölutjald.
Í því stendur arabískur kaupmaður frá
Cordóva. Hann selur litofin klæði og persnesk teppi frá
Austurlöndum, silki og postulínsvasa frá Kína,
gullmuni og fílabein frá Afríku, krydd, lyf og ilmefni
frá Indlandi og Austurlöndum nær og vopn og herklæði
frá Tóledó og Damaskus. Fyrir sveitastúlku
frá Noregi er þetta eins og draumur. Þú ferð
að máta silkikjóla, sem sjálf Sheherazade hefði
getað borið með sóma. Arabinn talar við þig
á blendingi af engilsaxnesku, völsku og danskri tungu, sem
hann hefur lært á ferðum sínum. - Lyktar gott,
snuff snuff, segir hann og heldur fram lítilli skrautlegri flösku.
- Er ilmvatn. Frá Egypt. Nota Kleópatra sjálf! Prófa
prófa! Ódýrt ódýrt!
Þú þefar af ilmvatninu. Lyktin er yndisleg og þér
finnst eins og þú sért í höll kalífans.
Þú tekur ekki eftir því, að þú
fellur niður á persneskt teppi og sofnar.
Næsta dag vaknar þú með ægilegan höfuðverk.
Þú lítur í kring um þig og sérð
að þú ert á skipi, sem siglir í suðurátt.
Hvergi sést til lands. Áhöfnin virðist vera ruslaralýður
frá Serklandi. Vilt þú stökkva
í sjóinn og reyna að synda til lands?
Eða vilt þú láta örlögin
ráða.
Þú gengur um á markaðnum.
Þar eru kaupmenn frá allri heimskringlunni sem bjóða
út vörur sínar. Hér er allt sem þig hefur
dreymt um. Þar sérð þú stórt röndótt
sölutjald. Í því stendur kaupmaður frá
Miklagarði. Hann selur litklæði, vopn og herklæði
frá Býsanz, kökur og vín frá Grikklandi,
lyf, krydd og ilmefni frá Austurlöndum. Fyrir sveitadreng frá
Noregi er þetta eins og draumur. Þú ferð að
máta brynjur og riddaraskikkjur sem hefðu sæmt sjálfum
Róland. Hann talar við þig á blendingi af slavnesku
máli og danskri tungu, sem hann hefur lært á ferðum
sínum. - Dobra, dobra, ódýr ódýr, segir
hann. Prófa prófa! Hann réttir þér flösku
með undarlegum, sterkum drykk.- Er sterk, segir hann. Þú
sterkur, ha, ha ha!
Þú bragðar á víninu. Það er
undarlegt en gott bragð af því og þér finnst
eins og þú sért í höll Miklagarðskeisara.
Þú tekur ekki eftir því, að þú
fellur niður á grískt teppi og sofnar.
Næsta dag vaknar þú með ægilegan höfuðverk.
Þú lítur í kring um þig og sérð
að þú ert á skipi, sem siglir í suðurátt.
Hvergi sést til lands. Áhöfnin virðist vera ruslaralýður
frá Garðaríki. Vilt þú stökkva
í sjóinn og reyna að synda til lands?
Eða vilt þú láta örlögin
ráða.
Þú fylgir ráðum völvunnar.
Þú leynist í Sætúni allan daginn og reynir
að finna skip, sem er að fara úr höfn. Um hádegisbilið
ert þú á markaðstorginu. Þá sérð
þú herflokk, sem er að leita um allt markaðstorgið
og skoðar í allar tunnur og kassa. Rétt hjá þér
er stór hlaði af loðskinnum. Vilt þú fela
þig í skinnunum eða fara niður að höfn
og leita að skipi.
Þú skríður inn í skinnahlaðann.
Hermennirnir koma nær og nær. Þú heyrir, að
þeir tala saman rétt hjá hlaðanum. Allt í
einu finnur þú, að þeir stinga spjótum í
hlaðann og velta skinnunum til. Svo finnur þú sársauka
í hægra fæti og gefur frá þér óp.
Hermennirnir draga þig út úr skinnunum og binda þig.
Þú ert nú fangi Haraldar sköllótta og verður
dæmd(ur) til dauða.
Þú felur þig hjá bónda´.
Það líða nokkrir dagar og þú lifir í
rólegheitum hjá bóndanum og fjölskyldu hans.
En einn dag koma menn Haraldar sköllótta að leita að
þér. Á síðasta augnabliki felur þú
þig í heyinu. Þú heyrir að hermennirnir leita
um allt húsið. Einn af þeim stingur upp á því,
að þeir skuli leita í heyinu. Allt í einu finnur
þú að hermennirnir fara að stinga spjótum í
heyið. Kastaðu teningi og athugaðu, hvort þú færð
jafna
tölu eða oddatölu.
Þú tekur ekkert mark á draumnum
Þú situr um kyrrt í Sætúnum. Einn dag
heyrir þú hróp og vopnaglamur. Þú sérð
út um gluggann, að hermenn Haraldar sköllótta umkringja
húsið. Nokkrir þeirra ryðjast inn og þú
heyrir fótatak þeirra í stiganum. Þú stendur
í herbergisdyrum þínum om byst til varnar. Þetta
er 20 manna óvinalið, með samanlagt 600 stig í bardagahæfni.
Ef þú hefur bæði 6 stig í gæfu
og 6 stig í mælsku, getur þú talað
þig út úr vandanum. Annars lætur
þú líf þitt.
Þú laumast niður að höfn.
Þar sérð þú skip sem er næstum tilbúið
að leggja úr höfn. Menn eru að bera vistir og varning
um borð. Þú smýgur um borð og skríður
niður undir feld, þegar enginn sér.
Ert þú piltur
eða stúlka?
Þú liggur undir feldinum allan daginn.
Um kvöldið heyrir þú að víkingar koma
um borð. Þú liggur kyrr og bíður
örlaganna.
Það kemst upp um þig
að þú ert í bátnum og þín bíður
bráður bani er þeir kasta þér fyrir borð.
En er þú hefur legið á hafsbotni í þó
nokkurn tíma, kemur til þín hafmeyja og tekur þig
með sér heim til sín. Hún hjúkrar þér
og þegar þú loksins rankar við þér,
verðið þið ástfangin. Upp frá því
býrð þú í sjónum og kemur aldrei
aftur á þurrt land og þykir þér það
ekki leitt. Þú getur orðið endurborinn og byrjað
ævintýrið á ný.
Þið biðjið gömlu konuna
að líta eftir dótinu ykkar. - Tja, segir hún.
Hún vill fá heila mörk fyrir það. Ef þið
viljið borga, missir þú eina mörk silfurs. Ef þú
hefur meira en 15 stig í mælsku, getur þú fengið
hana til að passa dótið ykkar ókeypis. Þegar
konan hefur tekið við dótinu ykkar, gerið þið
árás á varðmennina. Þeir hafa samanlagt
120 stig í bardagahæfni. Þú og félagar
þínir hafið 150 stig, að frádregnum þeim
stigum sem þið misstuð í bardaganum við ræningjana.
Gæfan ræður, hvort þið tapið
eðasigrið.
Þið sigrið.
Þú veist nú, að Haraldur sköllótti
er á hælunum á þér og nú verður
þú að flýta þér. Þið sækið
dótið ykkar hjá konunni. Fólk hefur safnast saman
við dauðu varðmennina, sem liggja á hafnarbakkanum,
og margir eru æstir. - Þetta eru útlægir menn,
hrópar einn í hópnum, og u. þ. b. 35 manns koma
ógnandi á móti ykkur. Þið getið ekki
komist um borð í skipið, því hópurinn
er á milli. Heiftin er mikil, og múgurinn er vís til
að drepa ykkur. - Derpum þá, drepum þá! hrópar
mannsöfnuðurinn. Viljið þið berjast?
Eða viljið þið flýja?
Gæfan er með þér.
Þú bregður hendi undir hálsmálið og
snertir með þremur fingrum við litla þórshamrinum,
sem þú berð í festi um hálsinn. Strax segir
einn af hermönnunum, að þeir séu búnir að
leita nógu mikið. Þeir hverfa burt. Þú liggur
eftir í heyinu og athugar, hvort þú hafir meiðst
eitthvað. Þá sérð þú allt í
einu stóra rottu gægjast fram. Þú flýtir
þér úr heyinu. Þá sérð þú
aðra stóra rottu og allt í einu bítur þriðja
rottan þig í fótinn. Þú finnur, að
þú getur ekki lengur staðið á fótunum
og þú hnígur niður í heyið. Þú
kallar á hjálp, en allt sem þú heyrir er vælið
og tístið í rottunum. Allt sem þú sérð,
eru tveir hrafnar, sem fljúga yfir himininn. Loksins heyrir þú
bóndann koma labbandi, en er hann að koma í rétta
átt?
Ef þú lest þetta á týsdegi, óðinsdegi,
þórsdegi eða frjádegi, finnur bóndinn þig
og bjargar þér. Eftir nokkra daga kemst þú á
skip.
Ef þú lest þetta á laugardegi, sunnudegi
eða mánudegi, finnur bóndinn þig ekki og rotturnar
borða
þig.
Þú talar til mannanna
- Heilir og sælir, Haraldsmenn! segir þú. Það
er mikil gæfa að þið komið mér til hjálpar.
Ég er dóttir/sonur Haralds konungs og hér voru nýlega
menn, sem ætluðu að ráðast á mig og drepa
mig. Þeir hlupu upp till fjalla. Þið náið þeim,
ef þið náið í hesta og ríðið
eftir þeim sem skjótast. Konungurinn, faðit minn mun launa
ykkur vel!
Mennirnir hlaupa þegar af stað og þú getur gengið
rólega niður að höfn til að finna
skip.
Þú leitar að skipi.
Við höfnina eru mörg skip og á bryggjunni stendur
fjöldi manns. Þú spyrð eftir skipi, sem er á
leið til Eldlands. Þeir benda þér á skip,sem
er að leggja úr höfn. Þú reynir að stökkva
um borð í skipið, en þú rennur til á
hálli bryggjunni og dettur í sjóinn. Ef þú
hefur meira en 6 stig í gæfu og hreysti samanlagt, tekst þér
að synda út í skipið og klifra um
borð. Ef þú hefur minna en 6 stig í gæfu
og hreysti, verður þú að svamla í sjónum
meðan fólkið á bryggjunni hendir á þig
grjóti og óhreinindum. Eftir langan tíma gefst
þú upp.
Þið flýið
Þið hlaupið inn í hliðargötu og takið
eftir að fleiri bætast í hópinn á eftir
ykkur. Hrópin dynja: -Drepum þá útlægu,
drepum þá útlægu. Gatan skiptist í tvær
áttir og þið hlaupið til vinstri. Þar er öldurhús,
og þar sem múgurinn er ekki ennþá kominn í
sjónmál, gefst ykkur færi á að fara inn
á öldurhúsið og leynast þar. Farangurinn er
ykkur til trafala og þess vegna styttist bilið milli ykkar og
múgsins. Farið þið inn á öldurhúsið
eða hlaupið þið áfram?
Þið farið inn á öldurhúsið.
Það er á síðustu stundu, því að
stuttu seinna koma þeir sem eru að elta ykkur og hlaupa fram
hjá. Síðan er allt kyrrt á götunni. Þeir
sem eru inni á öldurhúsinu horfa á ykkur með
grunsemdaraugum. Eftir að hafa kastað mæðinni, yfirgefið
þið öldurhúsið og hlaupið aftur að hafnarbakkanum.
Nú er allt tómt í höfninni. Allir virðast
hafa farið á eftir ykkur, þegar þið flúðuð.
Þið farið um borð í skipið, eftir að hafa
kastað nokkrum dauðum vörðum fyrir borð.
Þá nálgast 2 hermenn, en þeir bera þess
engin merki að þeir komi í öðrum en friðsamlegum
erindagerðum. Þeir spyrja ykkur, hvert þið séuð
að fara og af hverju þið séuð að flýta
ykkur svona mikið. Þeir virðast ekki vita neitt um eltingaleikinn
og vígin. Þið byrjið að leysa landfestar, og sjáið
þá, að múgurinn sem elti ykkur er búinn
að koma auga á ykkur. -Þarna eru þeir, heyrið
þið hrópað. Þið náið að leysa
landfestar og skipið leggur frá landi. En hermennirnir tveir
skilja að eitthvað er að gerast og stökkva um borð
til ykkar. En skipið skríður 10 faðma frá landi
og múgurinn nær ekki til ykkar. Þið hendið hermönnunum
tveimur í sjóinn og setjið upp segl.
Þið hlaupið áfram.
Þið hlaupið fram hjá öldurhúsinu og sjáið
brátt, að þið hafið hlaupið í hring
og nálgist höfnina aftur. Þarna liggur skipið tilbúið
og þið sjáið færi á að komast undan.
Þið stökkvið um borð og leysið landfestar á
augabragði. Í sömu stund og skipið losnar frá,
eru óvinirnir komnir og reyna að komast um borð. Nokkrir
detta í sjóinn, en 5 manns synda að skipinu og reyna
að klifra um borð. Þeir draga sverð úr slíðrum
og gera árás. Mannsöfnuðurinn stendur á bryggjunni
og gerir hróp að ykkur, en nær ekki til ykkar. Örlögin
ráða, hvort þið
sigrið eða
tapið.
Þú stendur á þiljum.
Þú sérð strönd Noregs hverfa aftur um stafn.
Fram undan er löng og hættuleg sjóferð. Skipið
getur farist í stormi eða strandað við klettótta
strönd og brotnað í spón. Kannski lendið þið
í hafvillum og hringsólið um opið hafið vikum
saman, þangað til allir deyja úr hungri og þorsta.
Sjóskrýmsli geta ráðist á skipið og
sökkt því. Þið getið mætt víkingum,
sem ræna öllum eigum ykkar og selja ykkur í þrældóm.
Og hvað tekur svo við, ef þið komist til þessa
undarlega Eldlands? Mætið þið tröllum, drekum,
ófreskjum og villidýrum? Er landið byggt mönnum,
eða illvættum, draugum og galdramönnum? Er það
byggilegt land, eða fullt af eldfjöllum, jöklum og sandauðnum?
Er sagan um hring Óðins sönn?
Hér getur þú haldið
ævintýrinu áfram!