![]() |
Eldland |
Eldland er söguspuni saminn af íslenskum móðurmálsnemendum
í Uppsölum og af nemendum Fjarskóla Langföruls.
Myndirnar eru frá IMS Clip-art viking.
Við tökum gjarnan við ábendingum um efni, heimildir
og leikreglur.
Við þökkum Sigrúnu Þorvarðardóttur
kærlega fyrir aðstoð við prófarkalestur.
![]() |
Heimildir | ![]() |
Sagan gerist á landnámsöld. Ef þú hefur góða þekkingu á víkingaöldinni og landnámsöldinni og náttúru Íslands, (=Eldlands) auðveldar það þér að velja rétta leið, sigrast á erfiðleikum, hættum og óvinum í sögunni, og komast þangað sem þú ætlar þér. Þessa þekkingu er t. d. hægt að fá í þessum bókum:
![]() |
Sögusvið | ![]() |
Eldland er á mörkum hins byggða heims, 8 vikur sjávar vestur af Noregi. Vestan þess er Miðgarðsormur einn.
Noregur og önnur lönd líta út eins og við eigum að venjast, nema hvað fjöruborð í Eystrasalti er 6 metrum hærra en nú. Eldland lítur út eins og spegilmynd af Íslandi, með Austurland, þar sem Vesturland er nú og Norðurland þar sem Suðurland er nú. Þú getur til dæmis notað þetta kort.

Þú getur líka sjálf(ur)búið þér til kort af Eldlandi. Taktu hæfilega stórt Íslandskort, leggðu gagnsæjan pappír yfir það og dragðu upp útlínur landsins, flóa og firði, vötn og ár og eyjar. Dragðu líka upp útlínur jökla. Merktu punkta, þar sem eru fjallatindar og rauða punkta, þar sem eru eldfjöll. Merktu aðra staði, sem þér þykja athyglisverðir, en enga kaupstaði eða aðra mannabyggð. Eldland er óbyggt! Snúðu gegnsæja blaðinu við, og þar hefur þú kort af Eldlandi. Þú getur skrifað nafnið ELDLAND efst með venjulegri skrift, eða rúnum ef þú kannt þær. Þú getur litað vötnin blá, fjöllin brún og láglendið grænt. En skrifaðu engin örnefni, þau verða ákveðin jafnharðan og sagan gerist.
Nú verða nornirnar að spinna og ákveða örlög þín og áskapaða eiginleika. Þú skalt nú kasta teningi (T6) og ákveða hversu mikið þú hefur af þessum eiginleikum.
KRAFTAR GÁFUR GÆFA VOPNFIMI ÞREK FEGURÐ MÆLSKA KUNNÁTTA RATVÍSI AUÐLEGÐ
Talan 6 þýðir að þú hefur mikið af eiginleikanum og 1 að þú hefur lítið af honum. Ef þú færð 6 í kröftum og 1 í gáfum, ert þú sterk(ur) en voðalega heimsk(ur). Ef þú hefur 6 í mælsku, en 1 í kröftum, ert þú máttlaus, en mjög vel máli farin(n). Skrifaðu niður hjá þér hversu mikið þú færð af hverjum eiginleika. Þetta skiptir máli, þegar þú mætir hættum og óvinum.
Eitt stig í auðlegð þýðir tíu merkur silfurs. Þar að auki átt þú 100 merkur, þegar þú byrjar leikinn. Það er ekki mikið. Þú verður að vinna meira fé á vegi þínum.
![]() |
Víkingur. Víkingar eru færir í sjómennsku og vopnaburði. Ef þú finnur aðra víkinga í leiknum, a. m. k. einn, getið þið komið ykkur saman um að kaupa skip, eða ræna því, og fara í víkingaferð. En gættu þín, víkingar lifa hættulegu lífi! Víkingur þarf að velja sér vopn áður en hann kemur inn í leikinn. Hann hefur 6 aukastig af vopnfimi. |
![]() |
Skjaldmey.Skjaldmeyjar eru höfðingjadætur, sem eru orðnar leiðar á hannyrðum og inniveru og leggja stund á vopnaburð og veiðar. Sumar skjaldmeyjar stunda víkingaferðir, aðrar stunda hestamennsku. Skjaldmey þarf að velja sér vopn, áður en hún kemur inn í leikinn. Hún hefur 6 aukastig af vopnfimi. |
![]() |
Bóndi. Bóndinn ræður fyrir búi og talsverðum auð. Hann skortir sjaldan mat. Hver bóndi hefur a.m.k. tvo þræla sér til hjálpar. Bóndinn leitast eftir friði og velsæld í heimabyggðinni, en getur misst allar eigur sínar, þegar konungar og víkingar herja. Hann hefur 6 aukastig af auðlegð. |
![]() |
Húsfreyja. Húsfreyjan ræður yfir lyklum að öllum kistum, fæðubúrum, fatabúrum og sjóðum í húsinu. Hún er því kölluð hanginlukla. Allir sem vilja fá eitthvað úr búinu, verða að biðja húsfreyju. Hún hefur 6 aukastig af auðlegð. |
![]() |
Skáld. Skáldið getur fært höfðingjum kvæði og fengið góða gripi að launum. Það getur heillað til sín konur með mansöngvum og hefnt sín á óvinum, með því að gera níðkvæði um þá. Skáldið hefur 6 aukastig af mælsku. |
![]() |
Læknir. Læknirinn er kona, sem hefur lært að nota lækningajurtir. Hún kann líka að binda um sár, taka mönnum blóð og stemma blóð, stinga menn svefnþorni og vekja þá úr dái. Hún er líka ljósmóðir. Læknirinn hefur grið og frið frá öllum mönnum, og fær oft fé og fyrirgreiðslu í laun fyrir verk sín. Hún hefur 6 aukastig af kunnáttu. |
![]() |
Goði. Goðinn stjórnar blótum og fær í stað þess hoftolla frá bændum. Hann er í vinfengi við goðin og getur keypt aðstoð frá þeim gegn fórnargjöfum. Goðinn á sæti í Lögréttu og getur sótt og varið mál á Alþingi. Hann hefur 6 aukastig af gæfu. |
![]() |
Völva. Völvan getur spáð um örlög manna. Að launum fær hún gjafir og veisluboð. Hún á stóran staf (völ) og skjóðu með rúnaspónum og völubeinum, sem hún notar við spádóma. Við spádóma sest hún á háan seiðhjall, og viðstaddir dansa í kring og syngja galdrakvæði. Hún hefur 6 aukastig af kunnáttu. |
![]() |
Munkur.Munkurinn er kominn sunnan úr löndum til að boða kristni á Norðurlöndum. Hann hefur verið gestur hjá kristnum bónda, sem hefur arfleitt hann. Hann kann mörg tungumál og er fróður um Suðurlönd. Hann kann lítið til búverka og sjómennsku. Hann hefur 6 aukastig af kunnáttu. |
![]() |
Seiðkona. Seiðkonan kann ýmsa galdra og notar þá til að gera öðrum mein. Fáir þora að gera henni á móti skapi, en hún er þó réttdræp hvar sem til hennar næst. Hún hefur 6 aukastig af kunnáttu. |
![]() |
Kaupmaður. Kaupmaðurinn selur loðskinn, raf og fisk til Suðurlanda og kaupir dýr klæði, glervörur, vín, korn og þræla til Norðurlanda. Hann er duglegur að reikna og kann mörg tungumál. Hann hefur 6 aukastig í auðlegð. |
![]() |
Selstúlka.Selstúlkan gætir ánna, geitanna og kúnna á fjöllum á sumrin. Hún kann að búa til smjör og osta. Ef ráðist er á heimabyggðina, hefur hún tækifæri til að flýja með allan búsmalann. Hún þarf því varla að óttast hungur. Hún hefur 6 aukastig af þreki. |
![]() |
Veiðimaður. Veiðimaðurinn hefur ótrúlega hæfni til þess að finna veiðidýr, fugla og fisk, hvar sem er, og veiða þau sér til fæðu og fjár. Vopn hans er bogi. Hann þarf líka að hafa net, skutul, hníf og salt. Hann getur ferðast hvert sem er, og þarf aldrei að taka matarforða með sér. Hann hefur 6 aukastig af ratvísi. |
![]() |
Jarlsdóttir. Víkingar rændu jarlsdóttur í Suðurlöndum, þegar hún var á barnsaldri. Hún hefur verið fósturdóttir bónda. Enginn veit nákvæmlega, hverra manna hún er, en hún man sjálf að foreldrar hennar áttu mikið ríki og að hún á að erfa það. Hún hefur 6 aukastig af fegurð. |
Þú getur valið þér eitt af þessum störfum, eða sjálf(ur) fundið annað starf sem til var á víkingaöld.
SVERÐ(5) SPJÓT(3) ÖXI(5) BOGI OG ÖRVAR(2) SKJÖLDUR(4) BRYNJA (5) SAX (4) HNÍFUR(1) BRYNTRÖLL(8) ATGEIR(5)
Í sögunni þarft þú stundum að berjast við óvini eða óvætti. Í sögunni er þá gefið upp, hvaða eiginleika andstæðingur þinn hefur, og hversu mörg stig hann hefur í bardagahæfni. Þú velur sjálf(ur) hvernig þú bregst við hættunni. Ef þú vilt berjast, getur þú reiknað út bardagahæfni þína með því að leggja saman öll stig sem þú hefur í KRÖFTUM, GÁFUM, GÆFU VOPNFIMI og ÞREKI. Bættu við þyngd vopna þinna í vættum.
Þú ræðst á andstæðinginn með því að kasta teningi. Fyrir hvern punkt, sem kemur upp á teningnum, skaðar þú andstæðinginn um eitt stig og dregur það frá bardagahæfni hans. Síðan kastar þú teningnum aftur, því að andstæðingurinn ræðst á þig. Töluna sem þá kemur upp, dregur þú frá þinni eigin bardagahæfni. Sá sem fyrr missir alla sína bardagahæfni, lætur líf sitt.
Ef þú hefur verið á ferð án matar, skaltu draga frá eitt stig fyrir hvern dag, sem þú hefur verið á leiðinni. Ef þú hefur nýlega særst í bardaga, verður þú að draga frá þau stig, sem þú misstir í bardaganum. En sár þín græðast og þú vinnur þá aftur eitt stig fyrir hvern atburð, sem þú gengur í gengum. Ef þú hittir lækni, vinnur þú aftur alla þína hæfni samstundis, en þá verður þú að borga lækninum eina mörk silfurs fyrir hvert stig sem þú hefur misst í bardagahæfni. Þú getur þó aldrei fengið fleiri stig en þú hafðir í upphafi.
Þegar þú deyrð í leiknum, skalt þú ekki syrgja óþarflega mikið, því þú getur endurfæðst með því að byrja aftur á söguspunanum, valið þér nýja persónu og fengið nýja eiginleika með því að kasta teningnum upp á nýtt.